Kristín Björnsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild
„Stjórnvöld stefna að því víðast hvar á Vesturlöndum að aldraðir geti búið sem lengst á eigin heimilum. Íslensk stjórnvöld hafa stefnt að því sama frá síðustu aldamótum og samtök eldri borgara hér hafa lagt áherslu á að aldraðir fái nauðsynlegan stuðning til að búa áfram á eigin heimilum.“
Þetta segir Kristín Björnsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Kristín hefur undanfarið unnið að rannsókn á stuðningsaðferðum í heimaþjónustu og heimahjúkrun aldraðra. Rannsókn Kristínar felst í athugun á vettvangi þar sem heimaþjónusta er veitt. Viðtöl eru tekin við notendur þjónustunnar, aðstandendur þeirra og starfsmenn. Kristín segir að frumniðurstöður hafi leitt í ljós að flestum þátttakendum líði vel heima og að þeir reiði sig á þann stuðning sem heimaþjónustan veitir. Kristín segir að greining á starfsaðferðum heimaþjónustunnar sýni að þær einkennist af mun meiri sveigjanleika hér en tíðkast víða erlendis þar sem staðlar eru notaðir til að skipuleggja inntak og umfang þjónustu.
Kristín Björnsdóttir
Kristín hefur undanfarið unnið að rannsókn á stuðningsaðferðum í heimaþjónustu og heimahjúkrun aldraðra. Rannsókn Kristínar felst í athugun á vettvangi þar sem heimaþjónusta er veitt.

Hluti af rannsókn Kristínar felst í því að kanna hvort mögulegt sé að halda þessum sveigjanleika sem einkennir íslenska heimaþjónustu samhliða því að taka upp staðlaðar aðferðir við heimahjúkrun.
Þá kemur fram í rannsókninni að hér hafi verið farin óvanaleg og jafnframt árangursrík leið við að efla samvinnu og samþættingu ólíkra starfsgreina í heimaþjónustu. Kristín segir að lögð hafi verið áhersla á að samskipti milli starfshópa séu greið og að starfsmenn vinni sameiginlega að því að skipuleggja þá aðstoð sem veitt er.
Kristín segir ljóst að sú stefna að fólk sé sem lengst heima, þrátt fyrir flókin og vandasöm heilsufarsvandamál, útheimti sérhæfða þekkingu sem hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun þurfi að hafa aðgang að. „Rannsóknin leiddi í ljós augljósa tregðu í samskiptum heimahjúkrunarfræðinga og þeirra sérfræðinga sem þeir þurftu að leita til. Þá kom einnig fram að íslenskir hjúkrunarfræðingar sem sinna heimaþjónustu nýttu oft hugmyndaauðgi og óvanalegar aðferðir sem reyndust í mörgum tilvikum mjög árangursríkar,“ segir Kristín.