Skip to main content

Hæfileikar presta

Ásdís Emilsdóttir Petersen, doktorsnemi við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild

„Það hefur vart farið fram hjá neinum að þjóðkirkjan starfar í ögrandi umhverfi sem gerir miklar kröfur til leiðtoga hennar. Kirkjan er áhugaverður vinnustaður, með tilliti til leiðtogastjórnunar, starfsumhverfis og ekki síst breytinga á kynjahlutfalli," segir Ásdís Emilsdóttir Petersen, doktorsnemi við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild. „Í ljósi þessa ákvað ég að nýta menntun mína úr guðfræðinámi og stjórnunarnámi til þess að vinna að doktorsverkefninu „Leiðtogahlutverkið í kirkjunni í ljósi nútímastjórnunarfræða." Aðalleiðbeinandi er dr. Pétur Pétursson, prófessor í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, og meðleiðbeinandi er Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor í Viðskiptafræðideild."

Ásdís Emilsdóttir Petersen

„Markmiðið er að skilgreina prestshlutverkið og öðlast vitneskju um árangursríka eiginleika í fari presta."

Ásdís Emilsdóttir Petersen

„Markmiðið er að skilgreina prestshlutverkið og öðlast vitneskju um árangursríka eiginleika í fari presta. Eiginleikarnir eru bornir saman við sjónarhorn úr fræðum hagnýtrar guðfræði en einnig við nútímastjórnunarkenningar um leiðtoga og árangur. Meginrannsóknarspurningin beinist að því að skoða samhengið á milli hæfileika presta í tiltekinni safnaðargerð og árangurs í starfi."

Ásdís byggir rannsókn sína á spurningalistum og viðtölum. Sérvaldir prestar og virkir leikmenn hafa tekið þátt í alþjóðlegri spurningakönnun um árangursríka gæðaþætti í safnaðarstarfi. Spurningakönnunin er hönnuð af þýskri stofnun sem er kennd við fræði um náttúrulega safnaðaruppbyggingu (NCD).

„Til þess að fá vitneskju um séríslenskar aðstæður tók ég jafnframt viðtöl við reynslumikla presta af báðum kynjum. Með því að mæla og meta hæfnisþætti sem leiða til árangurs vona ég að niðurstöður auki þekkingu um árangur í kirkjustarfi og geti nýst við ráðningu presta, starfsþjálfun og stefnumótun," segir Ásdís.