Skip to main content

Graffití og önnur sjónræn skilaboð

„Sjónrænar merkingar fólks í opinberu rými eru öll þau sjáanlegu ummerki sem fólk skilur eftir sig í umhverfinu sem skilaboð til samborgaranna. Dæmi um þetta er til að mynda graffití, auglýsingaskilti, hálfkláraðar byggingar, opnir grunnar, litaðir hjólastígar og fleira. Þessar sjónrænu merkingar eru viðfangsefnið í nýrri rannsókn sem Sveinn Eggertsson, dósent í mannfræði, vinnur nú að. 

„Áherslan í rannsókninni er tvíþætt, annars vegar er áhersla lögð á graffití ungmenna og hins vegar á sjónræn skilaboð frá eigendum fasteigna, auglýsendum og opinberum aðilum. Þessar ólíku merkingar eru bornar saman og greindar út frá valdi eða valdleysi þeirra sem hluti eiga að máli,“ útskýrir Sveinn.

Sveinn Eggertsson

„Áherslan í rannsókninni er tvíþætt, annars vegar er áhersla lögð á graffití ungmenna og hins vegar á sjónræn skilaboð frá eigendum fasteigna, auglýsendum og opinberum aðilum.“

Sveinn Eggertsson

„Graffití er margslungið tjáningarform, allt frá mildu „taggi“ ungmenna, þar sem gerendur skrifa nafn sitt í ákveðnum stíl og endurtaka ritunina aftur og aftur í borgarumhverfinu, til mun heiftúðugri merkinga þar sem átök eru meiri í samfélaginu. Hér er því um róf merkinga að ræða sem bera má saman við róf merkinga eignamanna, viðskiptamanna og opinberra aðila. Væntanlega mun þessi samanburður sýna nokkuð ólíkar heimildir til tjáningar í samræmi við valdastöðu,“ segir Sveinn. 

Kveikjan að rannsókninni er tvíþætt að sögn Sveins. „Niðurstaðan úr athugun sem ég gerði í spænska bæjarfélaginu San Lorenzo á dreifingu tagga var sú að þau bæru fyrst og fremst vott um að gerendurnir hlökkuðu til að taka þátt í samfélaginu sem fullgildir einstaklingar en þau væru ekki til marks um að þeir vildu sýna vanvirðingu sína. Á hinn bóginn verður oft vart við þó nokkurt virðingarleysi eignamanna og opinberra aðila í þeim sjónrænu skilaboðum sem þeir bera á borð fyrir fólk,“ segir Sveinn. 

„Einn praktískur ávinningur af þessari rannsókn gæti orðið sá að auðvelda opinberum aðilum að koma í veg fyrir óæskilegt graffití. Annar ávinningur er sá að gera hið sjónræna rými almennt vænna,“ segir Sveinn að lokum.