Skip to main content

Forvarnir gegn afbrotahneigð

Ester Helga Líneyjardóttir, MA frá Uppeldis- og menntunarfræðideild

Ester Helga Líneyjardóttir lauk MA-gráðu í uppeldis- og menntavísindum með áherslu á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn barna og ungmenna, með rannsókn um mikilvægi forvarna í barnæsku gegn afbrotahneigð. Þar er bent á hvernig forða megi börnum frá afbrotum síðar á ævinni.

„Ég bendi á að snemmtæk inngrip geti stuðlað að meiri farsæld og færni en inngrip síðar á lífsleiðinni. Í barnæsku erum við mjög móttækileg fyrir þroskandi og styðjandi umhverfi en um leið og við eldumst öðlumst við sjálfstæði og getu til að móta eigin umhverfi sem gerir inngrip flóknara og kostnaðarsamara.“

Ester Helga Líneyjardóttir

Í rannsókn Esterar Helgu er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að draga úr áhættuþáttum og auka verndandi þætti til þess að reyna að koma í veg fyrir að börn og ungmenni leiðist út í afbrot.

Ester Helga Líneyjardóttir

Í rannsókn Esterar Helgu er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að draga úr áhættuþáttum og auka verndandi þætti til þess að reyna að koma í veg fyrir að börn og ungmenni leiðist út í afbrot. „Ég bendi einnig á samspil einstaklings, fjölskyldu, skóla og samfélags í þessu samhengi,“ segir Ester Helga sem valdi viðfangsefnið vegna áhuga á farsæld barna og ungmenna í áhættuhópum.

Niðurstöður leiða í ljós að hegðunarraskanir, afbrot og áfengis- og/eða fíkniefnaneysla foreldra, skortur á jákvæðum geðtengslum við foreldra og einelti eru þættir sem setja ungmenni í áhættuhóp strax í barnæsku. „Líklegt er að þau sem falla í þennan áhættuhóp sýni af sér afbrotahneigð á unglings- og fullorðinsárum.“ Ester Helga segir að niðurstöðurnar rími vel við fyrri rannsóknaniðurstöður á sama sviði. „Vonandi hvetja þær alla sem vinna með börnum til að vinna markvisst að forvörnum gegn afbrotahneigð.“

Leiðbeinandi: Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild.