Skip to main content

Fjölskyldumeðferð fyrir of feit börn

Þrúður Gunnarsdóttir, sálfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum

„Okkur langar helst að setja á fót móttöku eða göngudeild fyrir of feit börn þar sem boðið er upp á raunprófaða meðferð sem við vitum að virkar,“ segir Þrúður Gunnarsdóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, sem stundaði rannsóknir á þverfaglegri meðferð fyrir þennan hóp. „Hér á landi eru nánast engin úrræði í boði fyrir börn yfir kjörþyngd en vonandi hjálpa þessar rannsóknir okkar og niðurstöðurnar til að breyting verði þar á.“

Þrúður Gunnarsdóttir

„Okkur langar helst að setja á fót móttöku eða göngudeild fyrir of feit börn þar sem boðið er upp á raunprófaða meðferð sem við vitum að virkar,“

Þrúður Gunnarsdóttir

Meðferðin á rætur að rekja til Bandaríkjanna. „Tilgangurinn með rannsókninni er að sýna fram á að meðferðin, sem er sálfræðimiðuð, virkar líka hér á landi.“ Þrúður bauð 84 fjölskyldum meðferð og hefur því fylgst með þeim í tvö ár eftir að meðferðinni lauk. Niðurstöður sýna að meðferðin skiptir miklu máli fyrir líkamlegt ástand og líðan barnanna. Breytingar verða á líkamsþyngdarstuðli þeirra og líkamsástandi auk þess sem líðan breytist til batnaðar. Sama á við um foreldrana sem taka þátt.

Þrúður starfar náið með lækni og næringarfræðingi og íþróttafræðingar sáu um hreyfingartíma í meðferðinni. „Við notum aðferðir sálfræðinnar til að hjálpa þátttakendum að tileinka sér heilsusamlegri lífshætti, hreyfa sig meira og neyta hollrar fæðu og svo leiðbeinum við þeim að takast á við ýmiss konar vanda.“

Leiðbeinendur: Ragnar Bjarnason, sérfræðingur í efnaskiptasjúkdómum barna á Barnaspítala Hringsins, Anna Sigríður Ólafsdóttir, lektor á Menntavísindasviði, og Urður Njarðvík, lektor við Sálfræðideild.