Skip to main content

Fjársjóður víkingaaldar

Magdalena M.E. Schmid, doktorsnemi við Sagnfræði- og heimspekideild

„Verkefnið er þverfagleg fornleifarannsókn og er innlegg í alþjóðlega umræðu varðandi meginálitamál fornleifafræðinnar,“ segir Magdalena M.E. Schmid, doktorsnemi í fornleifafræði. Magdalena kom til Íslands vegna áhuga á víkingaöldinni, íslenskri tungu og jarðfræði en rannsóknarverkefni hennar snýst um aldursgreiningu fornleifa frá víkingaöldinni íslensku ( ≈ 870–1050).

Magdalena M.E. Schmid

Magdalena kom til Íslands vegna áhuga á víkingaöldinni, íslenskri tungu og jarðfræði en rannsóknarverkefni hennar snýst um aldursgreiningu fornleifa frá víkingaöldinni íslensku.

Magdalena M.E. Schmid

„Umfangsmiklar rannsóknir á undanförnum árum hafa gefið af sér gríðarlega mikið af nýjum gögnum sem varpa ljósi á tímasetningu landnámsins,“ segir Magdalena. Hún greinir fyrirliggjandi gögn og vinnur að því að setja saman skrá um allar aldursgreiningar frá víkingaöld á Íslandi. „Notkun gjóskulaga úr eldsumbrotum frá landnámi er áreiðanlegasta aðferðin sem notuð er á Íslandi til þess að aldursgreina mannvistarleifar,“ segir hún en það var Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, sem var brautryðjandi í gjóskulagafræði.

Magdalena segir Ísland óvenjulegt að því leyti að hér er hægt að bera saman tímasetningar sem byggjast á gjóskulögum, kolefnisgreiningum og gerðfræði. Á Íslandi er tiltölulega heildstætt og aðgengilegt efni sem er hægt að taka saman í skrá. Í Noregi sem dæmi væri ekki hægt að aldursgreina mannvistarleifar með sama hætti. „Ég greini fyrirliggjandi gögn úr ýmsum áttum og ber saman vísbendingar um aldur. Vonandi verður afraksturinn af verkefninu m.a. að hægt verður að skilgreina tímabil innan víkingaaldarinnar með meiri nákvæmni en áður hefur þekkst.“

„Umræðan um aldursgreiningu og gildi mismunandi aðferða við hana hefur liðið fyrir þá almennu tilhneigingu að tímasetning byggist oftast á einni aðferð en ekki á því að taka mið af vísbendingum sem fást með ólíkum aðferðum – enda stangast þær oft á. Verkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að láta ólíkar aðferðir styðja hver aðra og auka þannig nákvæmni við tímasetningu,“ segir Magdalena.

Leiðbeinandi: Orri Vésteinsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild.