Pedram Ghamisi, doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
„Við erum að þróa sjálfvirka greiningartækni sem eykur gæði við að flokka fjarkönnunarmyndir en með flokkuninni er myndunum skipt upp í yfirborðsflokka, t.d. jarðveg, tún, hraun, ár og vegi,“ segir Pedram Ghamisi, doktorsnemi í rafmagns- og tölvuverkfræði.
Pedram var valinn besti vísindamaður KNT-tækniháskólans í Teheran í Íran úr hópi 200 framhaldsnema skólaárið 2010–2011. Hann kom til Íslands til þess að njóta leiðsagnar Jóns Atla Benediktssonar, aðstoðarrektors vísinda og kennslu, sem er einn færasti vísindamaður veraldar á sviði fjarkönnunar.
Pedram Ghamisi
„Við erum að þróa sjálfvirka greiningartækni sem eykur gæði við að flokka fjarkönnunarmyndir en með flokkuninni er myndunum skipt upp í yfirborðsflokka, t.d. jarðveg, tún, hraun, ár og vegi.“

Pedram rannsakar myndir frá gervitunglum, einkum með flokkun að leiðarljósi. „Flokkun fjarkönnunarmynda nýtist á ýmsum vettvangi. Aðferðina er hægt að nota til að fylgjast með hverju sem er á yfirborði jarðar, t.d. uppskeru, nútímalandbúnaði, skógrækt, borgarskipulagi, kortagerð og vöktun og áhættustjórnun svo eitthvað sé nefnt.“
„Að mínu mati er flokkun fjölrásafjarkönnunarmynda eitt mikilvægasta notkunarsvið fjarkönnunar. Fyrir flokkunina þarf sérstaka flokkara sem er bæði flókið og tímafrekt verkefni, einkum ef þess gerist þörf fyrir sérhvert verkefni. Þess vegna hafa margir vísindamenn frekar nálgast viðfangsefnið frá sjónarhorni tölfræði og gervigreindar til þess að ná fram sjálfvirkni og einfalda þróunina,“ útskýrir Pedram.
„Myndir frá gervitunglum leika lykilhlutverk í daglegu lífi margra, þökk sé framförum í fjarkönnunartækni. Ég hef áhuga á þessu viðfangsefni vegna þess að gervitungl eru í senn algeng og áhrifa þeirra gætir víða,“ segir Pedram að lokum.
Leiðbeinandi: Jón Atli Benediktsson, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.