Ragna Sara Jónsdóttir, ráðgjafi og MS í alþjóðaviðskiptum
„Það hefur lengi loðað við umræðu um erlendar fjárfestingar að þær séu eingöngu til þess fallnar að skapa einhvers konar arðrán í þróunarlöndum. Nýlegar rannsóknir sýna hins vegar að beinar erlendar fjárfestingar geta haft mikil og jákvæð áhrif á samfélög og útrýmingu fátæktar sé rétt haldið á málum,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir sem nýverið lauk meistaraprófi í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Ragna Sara Jónsdóttir
„Nýlegar rannsóknir sýna hins vegar að beinar erlendar fjárfestingar geta haft mikil og jákvæð áhrif á samfélög og útrýmingu fátæktar sé rétt haldið á málum,“

Í meistararitgerðinni skoðaði Ragna Sara hvaða skilyrði við beinar erlendar fjárfestingar í þróunarlöndum geta leitt til jákvæðra samfélagsáhrifa. „Það er mikilvægt að skoða áhrif fjárfestinga á samfélög vegna þess að umfang þeirra er sífellt að aukast og með því að hvetja til fjárfestinga sem geta haft jákvæð áhrif má spara umtalsvert af opinberu fé sem veitt er í þróunaraðstoð,“ segir Ragna Sara.
Niðurstöðurnar sýna að fjárfestingar skapa ekki eingöngu bein og afleidd störf í þróunarlöndum heldur einnig aukið innstreymi fjármagns og auknar beinar skatttekjur ríkisins. „Hvað mjúku málin varðar, sem erfitt er að mæla, sýna niðurstöðurnar að fjárfestingar sem fela í sér flutning þekkingar og tækni, sem og mikil tengsl við stofnanir og önnur fyrirtæki í landinu, hafa jákvæð áhrif á samfélagið og útrýmingu fátæktar. Þarna skiptir miklu að fjárfestar séu með stefnu hvað varðar samfélagslega ábyrgð til að ná fram jákvæðum áhrifum,“ segir Ragna Sara að lokum.