Kári Kristinsson, lektor við Viðskiptafræðideild
„Smálán hafa verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Jafnvel hefur verið talað um að banna ætti þessa tegund lána. Okkur þótti því forvitnilegt að skoða hvort þeir sem taka smálán hafi verra fjármálalæsi og/eða séu hvatvísari en almennir neytendur,“ segir Kári Kristinsson, lektor í viðskiptafræði, um rannsókn sem hann vinnur að um þessar mundir.
Kári Kristinsson
„Okkur þótti því forvitnilegt að skoða hvort þeir sem taka smálán hafi verra fjármálalæsi og/eða séu hvatvísari en almennir neytendur.“

Hugmyndin er upphaflega komin frá nemanda. „Davíð Arnarson, nemi í viðskiptafræði, kom til mín með hugmynd um að skoða fjármálalæsi þessara neytenda fyrir lokaverkefnið sitt. Mér fannst þetta góð hugmynd og nýtti síðan tækifærið til að safna gögnum um hvatvísi þessara neytenda,“ segir Kári en hann hafði áður rannsakað allnokkuð hvatvísi í fjármálum.
„Við erum enn að vinna úr gögnunum en fyrstu niðurstöður benda meðal annars til þess að fjármálalæsi þeirra sem taka smálán sé verra en hins venjulega Íslendings,“ segir Kári og bætir við að eftir sé að skoða hvort hópurinn sé hvatvísari en aðrir neytendur.
Kári segir of snemmt að segja til um gildi rannsóknarinnar fyrir vísindin en hann vonast til að rannsóknin eigi eftir að gagnast löggjafanum við að taka upplýsta ákvörðun um framtíð smálána á Íslandi.