Skip to main content

Eftirlit með eftirlitinu

Valdimar Tr. Hafstein, dósent við Félags- og mannvísindadeild

Eftirlitsmyndavélum á Íslandi hefur fjölgað mikið á síðastliðnum árum. Á þetta við um vélar á vegum opinberra aðila, fyrirtækja, samtaka og einstaklinga.

Valdimar Tr. Hafstein, dósent í þjóðfræði, stýrir, ásamt Bryndísi Björgvinsdóttur þjóðfræðingi, rannsókn og kortlagningu á eftirlits- og öryggismyndavélum í almannarými í miðborg  Reykjavíkur. Valdimar segir að tilgangur verkefnisins sé margþættur en hann sé m.a. að meta umfang eftirlitsins og búa í haginn fyrir þá  sem vilja meta vöxt og þróun eftirlits frá ári til árs, grennslast fyrir um sjónarhorn og reynslu þeirra sem nýta vélarnar, kanna í hvaða tilgangi þær eru settar upp og skynja afstöðu fólks til þeirra. Hugmyndin er jafnframt að gera borgarbúum kleift að nálgast upplýsingar um umfang og tilgang þess eftirlits sem er virkt og sjónsvið vélanna og eigendur þeirra.

Valdimar Tr. Hafstein

Valdimar stýrir, ásamt Bryndísi Björgvinsdóttur þjóðfræðingi, rannsókn og kortlagningu á eftirlits- og öryggismyndavélum í almannarými í miðborg  Reykjavíkur.

Valdimar Tr. Hafstein

Valdimar segir að ábyrgðaraðilum véla sem mynda almannarými sé skylt samkvæmt persónuverndarlögum að vara við eftirlitinu með áberandi hætti og tilgreina hver ber ábyrgð á því. Að sögn Valdimars leiddi kortlagning vélanna í ljós að slíkar viðvaranir eru fágætar og opinberar stofnanir og sjálfur löggjafinn sinni jafnvel ekki þessari skyldu sinni. Við þetta bætist svo, að sögn Valdimars, að hvergi er á nokkurn hátt haldið utan um þetta dreifða eftirlit. „Uppsetning eftirlits- og öryggismyndavéla er hvorki leyfisskyld né tilkynningarskyld þó að vélarnar skrái ferðir almennings um stræti og torg, svo fremi sem þær vakta líka eigur þess sem á og rekur myndavélina. Því eru hvergi til upplýsingar um fjölda þessara véla né staðsetningu þeirra,“ segir Valdimar.

„Þess vegna ákváðum við,“ segir hann, „til viðbótar við hefðbundna birtingu á fræðilegum vettvangi, að gera eftirlitskort af miðborginni aðgengilegt á Netinu, með ljósmynd af hverri vél og með helstu upplýsingum um sjónsvið hennar  og ábyrgðaraðila. Tilgangurinn með kortinu er að vekja borgarbúa til vitundar um umfang eftirlitsins og stuðla að gagnrýninni umræðu á opinberum vettvangi um eftirlitsmyndavélar, öryggi og persónuvernd.“