„Rannsóknin sem verkefnið mitt byggist á mun auka þekkingu á því hvað býr að baki íslenskum og alþjóðlegum ráðleggingum um mataræði og næringu fyrir ung börn. Reynt verður að þróa einfaldar aðferðir til að meta stöðu og líklega þróun næringar, vaxtar og heilsufars hjá börnum. Eins verður stefnt að því að auka vísindalega þekkingu á sviðum þar sem við Íslendingar njótum ákveðinnar sérstöðu, svo sem í sambandi við brjóstagjöf,“ segir Birna Þórisdóttir, doktorsnemi í næringarfræði, um doktorsrannsókn sína.
Birna fékk styrk úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands til rannsóknarinnar sem unnin verður á vegum Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala. „Rannsóknastofan hefur frá upphafi lagt áherslu á rannsóknir í þágu viðkvæmra hópa, svo sem ungra barna, og áhuginn er mikill á að afla bæði vísindalegrar og hagnýtrar þekkingar,“ segir Birna.
Hugmyndin að verkefninu á rætur í meistara- verkefni Birnu en það fjallaði um langtímaáhrif næringar á fyrstu árum ævinnar. „Ég áttaði mig á því að mörgum spurningum er ósvarað um þetta mikilvæga aldursskeið, sérstaklega um þann mat sem tekur við þegar brjóstagjöf lýkur,“ segir hún.
Birna Þórisdóttir
Reynt verður að þróa einfaldar aðferðir til að meta stöðu og líklega þróun næringar, vaxtar og heilsufars hjá börnum.

Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að D-vítamínbúskapur eins árs barna á Íslandi sé almennt góður og það megi þakka almennri notkun á D-vítamíndropum, lýsi og stoðmjólk. „Börn sem ekki fylgja ráðleggingum varðandi notkun D-vítamíngjafa virðast í hættu á D-vítamínskorti, jafnvel þótt mataræðið sé fjölbreytt og gott að öðru leyti, enda innihalda mjög fáar fæðutegundir D-vítamín í nægilegu magni frá náttúrunnar hendi. D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki varðandi beinheilsu og vísbendingar eru um að það geti haft áhrif á þróun ýmissa sjúkdóma,“ bendir Birna á og vonast til að niðurstöður rannsóknarinnar verði foreldrum sem bestur leiðarvísir um mataræði barna sinna.
Leiðbeinandi: Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild.