Heiðrún Haraldsdóttir, MS frá Viðskiptafræðideild
Kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja fyrir og eftir hrun var meginviðfangsefni Heiðrúnar Haraldsdóttur í meistaraverkefni hennar í fjármálum fyrirtækja á síðasta ári. „Rannsóknin snerist um að skoða hvort reglur Fjármálaeftirlitsins um hvatakerfi fjármálafyrirtækja frá árinu 2011 stuðli að fjármálastöðugleika. Ég skoðaði reglurnar með tilliti til sögunnar, hvað gerðist hér og erlendis við efnahagshrunið, hvaða lög og reglur Evrópusambandið er að setja sér eftir hrun og hvað fræðin sjálf segja um hvatakerfi,“ segir Heiðrún.
Sjálf er hún ekki ókunnug efninu því að fyrir hrun starfaði hún í fjármálafyrirtæki við að reikna út bónusa starfsmanna. „Mér fannst efnið áhugavert bæði vegna starfa minna og þess sem ég hafði lesið mér til um það, jafnt í fræðigreinum sem í fjölmiðlum. Fjölmiðlaumfjöllun um hvatakerfi hefur t.d. ávallt verið á neikvæðum nótum, þ.e. að ekkert gott leiði af þeim. Þetta er auðvitað ekki raunin og árangurstengd laun hafa verið þekkt lengi og þau geta stuðlað að ýmsu jákvæðu,“ segir Heiðrún. Hún nefnir sem dæmi að samkvæmt rannsóknum megi auka líkurnar á góðri frammistöðu með réttri hvatningu og hvatning í formi launa geti haft mikil áhrif á frammistöðu starfsfólks.
Heiðrún Haraldsdóttir
„Rannsóknin snerist um að skoða hvort reglur Fjármálaeftirlitsins um hvatakerfi fjármálafyrirtækja frá árinu 2011 stuðli að fjármálastöðugleika.“

Í Rannsóknarskýrslu Alþingis er bent á að hrun fjármálakerfisins megi að hluta til rekja til uppbyggingar kaupauka- og hvatakerfa innan fjármálafyrirtækjanna. Eftir hrun setti Fjármálaeftirlitið nýjar reglur sem ætlað er að tryggja að fjármálafyrirtæki séu rekin á heilbrigðan og eðlilegan hátt með hagsmuni viðskiptavina, eigenda og alls þjóðarbúsins að leiðarljósi.
„Eftir að hafa skoðað reglurnar eru niðurstöður mínar þær að reglurnar veiti fjármálafyrirtækjum aðhald varðandi hvatakerfin og ýti undir fjármálastöðugleika,“ segir Heiðrún en bendir þó á að hinar eiginlegu niðurstöður í framkvæmd séu ekki ljósar þar sem ekkert af stóru fjármálafyrirtækjunum greiði nú kaupauka.
Heiðrún vonast til að rannsóknin sé upplýsandi innlegg í umræðuna um bónusa. „Mér finnst til dæmis að fjölmiðlar mættu styðjast meira við rannsóknir en þeir gera þegar þeir fjalla um mál þessu tengd. Einhliða umræða er aldrei góð fyrir samfélagið,“ segir Heiðrún.
Leiðbeinandi: Gylfi Magnússon, dósent við Viðskiptafræðideild.