Elín Ögmundsdóttir, MS frá Hjúkrunarfræðideild
„Rannsóknin fjallar um hversu algeng blóðsykurslækkun er hjá nýburum, hvaða áhættuþættir búa að baki henni og hvernig staðið er að eftirliti með blóðsykri hjá nýburum á Landspítala,“ segir Elín Ögmundsdóttir, sem lauk meistaraprófi í hjúkrun vorið 2012. Hún starfar á vökudeild, nýburagjörgæslu spítalans, þar sem hugmyndin að rannsókninni kviknaði. „Þar er eftirlit með blóðsykri nýbura algeng hjúkrunarmeðferð, sem gjarnan leiðir til íhlutana á borð við þurrmjólkurgjöf, sem getur truflað upphaf brjóstagjafar. Vísbendingar voru um að sú ákvörðun að mæla blóðsykur væri fremur byggð á venjum en gagnreyndri þekkingu.“
Elín Ögmundsdóttir
Rannsókn Elínar á tíðni blóðsykurslækkunar hjá íslenskum nýburum er sú fyrsta sinnar tegundar og er vísindalegur ávinningur fólginn í því að fá íslenskar tölur til samanburðar við erlendar rannsóknir.

Úrtak Elínar voru 955 nýburar. „Tíðni blóðsykurslækkunar var 21,2% sem er mikið í samanburði við erlendar rannsóknir. Það skýrist að hluta til af samsetningu úrtaksins þar sem ekki var aðeins um heilbrigða, fullburða nýbura að ræða,“ segir hún og heldur áfram: „Eftirlit með blóðsykri reyndist ómarkvisst, stór hluti mælinganna var gerður innan klukkustundar frá fæðingu og því má ætla að erfitt hafi verið að greina á milli óeðlilegrar blóðsykurslækkunar og eðlilegrar aðlögunar nýbura að lífi utan móðurkviðar.“
Rannsókn Elínar á tíðni blóðsykurslækkunar hjá íslenskum nýburum er sú fyrsta sinnar tegundar og er vísindalegur ávinningur fólginn í því að fá íslenskar tölur til samanburðar við erlendar rannsóknir. „Niðurstöðurnar leiða einnig til þess að hægt er að bera núverandi starfshætti saman við starfshætti byggða á gagnreyndri þekkingu um blóðsykursstjórnun hjá nýburum og greina hvar úrbóta er þörf. Niðurstöðurnar geta því orðið til þess að bæta þjónustu við nýbura og foreldra þeirra.“
Leiðbeinendur: Guðrún Kristjánsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild, og Þórður Þórkelsson, yfirlæknir vökudeildar Barnaspítala Hringsins.