Skip to main content

Bjó til gagnagrunn um tannþroska barna og ungmenna

Sigríður Rósa Víðisdóttir, MS frá Tannlæknadeild

„Í aldaraðir hafa tennur verið notaðar til að bera kennsl á menn og til aldursgreiningar í réttarrannsóknum og í öðrum vísindalegum tilgangi,“ segir Sigríður Rósa Víðisdóttir, sem lauk meistaraprófi í tannlæknisfræðum vorið 2012. Í meistaraverkefni sínu rannsakaði hún tannþroska 1100 íslenskra barna og ungmenna og aldursgreindi þau út frá svokölluðum breiðröntgenmyndum af tönnum. Afraksturinn var gagnagrunnur yfir tannþroska barna og ungmenna.

Sigríður Rósa Víðisdóttir

Í meistaraverkefni sínu rannsakaði Sigríður tannþroska 1100 íslenskra barna og ungmenna og aldursgreindi þau út frá svokölluðum breiðröntgenmyndum af tönnum. Afraksturinn var gagnagrunnur yfir tannþroska barna og ungmenna.

Sigríður Rósa Víðisdóttir

Sigríður bendir á að hægt sé að greina aldur barna og ungmenna út frá tannþroska með mjög mikilli nákvæmni. „Það er talið mikilvægt fyrir hverja þjóð að þekkja tannþroska barna og ungmenna. Þetta er nauðsynleg þekking fyrir réttartannlækna svo að þeir geti sinnt starfi sínu sem nákvæmast,“ segir Sigríður Rósa, sem hefur unnið sem réttartannlæknir í nærri tvo áratugi.

Meðal þess sem meistararannsóknin leiddi í ljós var að stelpur og strákar ná ekki fullum tannþroska á sama tíma, þótt ekki sé marktækur munur milli kynja nema á augntönnum efri og neðri góms. „Stúlkur ná fullum tannþroska 17,81 árs í efri kjálka og 18,47 ára í þeim neðri. Drengir ná hins vegar fullum tannþroska 18 ára í efri kjálka en 17,63 ára í þeim neðri,“ segir Sigríður Rósa. Að sögn hennar vekja rannsóknir sem þessar oftast fleiri spurningar en þær svara.

„Rannsóknin er mjög gagnleg fyrir íslenska réttartannlækna og aðra tannlækna, lækna, mannfræðinga og fornleifafræðinga sem nýta tannþroska barna og ungmenna í störfum sínum. Með rannsókninni hefur tekist að gera nákvæman gagnagrunn yfir tannþroska barna og ungmenna sem er sambærilegur við erlenda gagnagrunna. Grunnurinn mun auðvelda nákvæma aldursgreiningu á íslenskum börnum og ungmennum þegar þess gerist þörf,“ segir Sigríður Rósa að lokum.

Leiðbeinandi: Svend Richter, dósent við Tannlæknadeild.