Skip to main content

Bætir gæði myndgreiningar

Behnood Rasti, doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild 

„Við þróuðum suðsíunaraðferðir sem eru byggðar á svokallaðri rúm-tíðnimerkjafræði en með henni eru greind merki sem tengjast bæði tíðni og rúmi. Suðsíun er fyrsta skrefið í úrvinnslu fjarkönnunargagna og hún gerir okkur kleift að auka til dæmis nákvæmni sjálfvirkra flokkara fyrir fjarkönnunarmyndir,“ segir Behnood Rasti, doktorsnemi í rafmagns- og tölvuverkfræði og styrkþegi úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands í maí 2012.

Behnood notar svokallaðar wavelet-aðferðir við myndgreiningu rúm-tíðnimerkjanna en þær hjálpa til við að einangra ákveðna þætti í landslagi eins og til dæmis dreifingu lúpínu um Ísland. Myndgreining rúm-tíðnimerkja er m.a. notuð í læknisfræði, landbúnaði, hernaði, fornleifafræði, skógrækt, strandnýtingu og fjarkönnun.

Behnood Rasti

“Suðsíun er fyrsta skrefið í úrvinnslu fjarkönnunargagna og hún gerir okkur kleift að auka til dæmis nákvæmni sjálfvirkra flokkara fyrir fjarkönnunarmyndir.“

Behnood Rasti

Suðsíun stafrænna merkja og stafrænna mynda er algengt vandamál í merkjafræði og myndgreiningu. Behnood notar margvíðar merkjafræðiaðferðir til suðsíunar á rúm-tíðnimerkjamyndefni með hjálp wavelet-vörpunar.

„Vegna örra framfara í skynjaratækni fást sífellt betri gögn með rúmtíðnimerkjum og það gerir okkur kleift að vinna æ meiri upplýsingar úr gögnunum. Einmitt þetta dró mig að verkefninu líkt og marga aðra vísindamenn. Styrkur wavelet- vörpunar er fólginn í því að hún er mjög skilvirk framsetning á breiðum flokki af merkjum og myndum,“ segir hann.

Behnood er frá Íran og valdi Háskóla Íslands vegna þess að þar starfar öflugur hópur vísindamanna sem sérhæfir sig í þessari grein. „Vísindamennirnir hér eru fremstir meðal jafningja, auk þess sem hér er undravert landslag og náttúrufegurð. Hér eru fossar, eldfjöll og norðurljós. Þetta varð þess valdandi að ég kom til þessa undralands.“

Leiðbeinendur: Jóhannes R. Sveinsson, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, og Magnús Örn Úlfarsson, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.