Skip to main content

Bæta hönnun lagna vegna jarðskjálfta

Þegar jarðskjálftar dynja yfir verða stundum bersýnilegar skemmdir á mannvirkjum ofanjarðar en minna ber á skemmdum sem verða á lögnum og öðru sem menn hafa komið fyrir neðanjarðar. Við Rannsóknamiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi vinnur Aldís Sigfúsdóttir að rannsóknum á áhrifum jarðskjálfta á lagnakerfi neðanjarðar. 

Aldís Sigfúsdóttir

„Almennt má segja að mjög takmarkaðar mælingar á áhrifum jarðskjálfta á lagnakerfi í jörðu liggi fyrir og því eru þessar upplýsingar frá Suðurlandsskjálftanum 2008 einstakar á heimsvísu. “ 

Aldís Sigfúsdóttir

„Í jarðskjálftanum 2008 var tjón á holræsalögnum Hveragerðisbæjar vegna jarðskjálftans metið á rúm 20% af endurstofnverði kerfisins. Þessi staðreynd kallar á endurbættar aðferðir við hönnun þessara lagna. Enn fremur liggja fyrir upplýsingar um það hvernig jörðin gekk til í bæjarlandinu í jarðskjálftanum 2008,“ segir Aldís. 

„Almennt má segja að mjög takmarkaðar mælingar á áhrifum jarðskjálfta á lagnakerfi í jörðu liggi fyrir og því eru þessar upplýsingar frá Suðurlandsskjálftanum 2008 einstakar á heimsvísu. Þarna höfum við gögn um þær hreyfingar sem urðu á ýmsum stöðum í bænum í jarðskjálftanum, svo og skemmdir á lögnunum í bænum. Þessar upplýsingar gera það að verkum að endurbætur á hönnunaraðferðum eru raunhæfar. Það hjálpar líka í þessu verkefni að við höfum unnið að rannsóknum tengdum lagnakerfum í áraraðir, m.a. á Suðurlandi.“ 

Aldís segir að hönnunarstaðlar í dag séu ákaflega takmarkaðir þegar kemur að hönnun lagna á slíkum jarðskjálftasvæðum og því sé gríðarlegur fengur að þessu rannsóknarverkefni fyrir þróun jarðskjálftaverkfræðinnar á þessu sviði. Hún segir að með hjálp gagna í verkefninu sé hægt að tengja saman tjónaskemmdir og kennistærðir yfirborðshreyfinga, sem skýra muni hvernig áhrif jarðskjálftar hafa á það hvernig lagnir hegða sér og bregðast við áraun í jarðskjálftum. „Með því að nýta þessar upplýsingar, ásamt því að beita tölulegum líkönum og greiningartækni sem þróuð hefur verið á Jarðskjálftamiðstöðinni á Selfossi, fást niðurstöður sem leiða munu til bættra hönnunaraðferða. Þannig koma bættar hönnunaraðferðir til með að draga úr skemmdum á lögnum á jarðskjálftasvæðum og það leiðir til aukins öryggis fyrir lagnakerfin og dregur úr öllum tjónakostnaði samfélagsins,“ segir Aldís. 

Leiðbeinandi: Ragnar Sigbjörnsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild.