Skip to main content

Aukin streita í kjölfar efnahagsþrenginga

Christopher McClure, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum

„Efnahagshrunið 2008 og þrengingarnar sem fylgdu í kjölfarið höfðu áhrif á Íslendinga, sérstaklega konur,“ segir Christopher McClure, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum. „Við sjáum einkenni streitu og andlegrar vanlíðunar og fólk sækir sér síður heilsutengda þjónustu en áður, fer t.d. sjaldnar til tannlæknis. Fleira fólk en áður í ákveðnum þjóðfélagshópum frestar eða hættir við að leita sér aðstoðar þrátt fyrir augljósa þörf. Enn fremur virðist sem konur hafi orðið fyrir meira andlegu áfalli en karlmenn í kreppunni,“ bendir Christopher á.

Christopher rannsakaði streitu á Íslandi í meistaranámi sínu í Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hann segir ofangreindar niðurstöður mikilvægar í ljósi þess að þær séu áreiðanlegar vísindarannsóknir. „Rannsóknin gefur vísbendingar um aukin heilsufarsleg einkenni í kjölfar þrenginganna. Taka þarf meira mark á þessari rannsókn en óformlegri könnunum sem fjölmiðlar taka gjarna upp og segja frá, t.d. könnunum sem sýna aukna hamingju,“ segir Christopher.

Christopher McClure

„Efnahagshrunið 2008 og þrengingarnar sem fylgdu í kjölfarið höfðu áhrif á Íslendinga, sérstaklega konur. Við sjáum einkenni streitu og andlegrar vanlíðunar og fólk sækir sér síður heilsutengda þjónustu en áður, fer t.d. sjaldnar til tannlæknis.“

Christopher McClure

„Atvinnustaða og tekjur hafa áhrif á okkur öll,“ segir Christopher enn fremur. „Þegar stórkostlegt efnahagshrun, eins og það sem varð á Íslandi og annars staðar, bætist við verður enn mikilvægara að ganga úr skugga um það hvernig og hvers vegna heilsu almennings hrakar.“

Christopher gegnir nú kennarastöðu við Oregon State háskólann í Bandaríkjunum, sem gerir honum kleift að halda áfram rannsóknunum. „Efnahagsþrengingarnar verðskulda sérstaka athygli með tilliti til lýðheilsu. Enn fremur þarf að bregðast við upplýsingum um neikvæða þróun í lýðheilsu landsmanna, t.d. aukið andlegt álag, þunglyndi, reykingar og skort á tannlæknaþjónustu fyrir fullorðna á viðráðanlegu verði.“

Leiðbeinandi: Arna Hauksdóttir, lektor við Læknadeild.