Fjóla Jónsdóttir, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Fjóla Jónsdóttir, prófessor í vélaverkfræði, vinnur nú að rannsókn sem felur í sér hönnun á sérhæfðu reiknilíkani sem lýsir stýrðri losun lyfs úr svokölluðu sílikonburðarkerfi. Sílikonfjölliða er lífsamræmanlegt efni sem má nota í lækningatæki sem geta losað lyf á stýranlegan hátt í blóðrás eða húð sjúklings. Fjóla segir að mikill áhugi sé á slíkum lækningatækjum og það sé vel gerlegt að framleiða þau. „Fyrir hámarksnotagildi þurfa lækningatæki, sem eru framleidd úr slíkum burðarkerfum, að losa lyfið á ákveðnum hraða. Sömuleiðis þarf fjölliðan að viðhalda réttri lögun og efniseiginleikum til að þjóna megintilgangi lækningatækisins. Það getur verið erfitt og tímafrekt að ná slíku fram eingöngu með prófunum,“ segir Fjóla.
Fjóla Jónsdóttir
Fjóla vinnur nú að rannsókn sem felur í sér hönnun á sérhæfðu reiknilíkani sem lýsir stýrðri losun lyfs úr svokölluðu sílikonburðarkerfi.

Hún segir að hugmyndin hafi komið fram í Lyfjafræðideild háskólans þar sem Már Másson prófessor og nemendur hans hafa rannsakað sílikonburðarkerfi í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Össur. Fjóla bætir því við að Lyfjafræðideildin hanni og smíði frumgerðir að burðarkerfunum, auk þess að framkvæma mælingar á losunareiginleikum þeirra. „Við höfum unnið með Lyfjafræðideild að þróun reiknilíkansins þar sem við beitum verkfræðilegum aðferðum til að lýsa eiginleikum þess.“
Fjóla segir að verkefnið sé krefjandi og hafi líka raunverulegt notagildi. „Þarna er tækifæri til að byggja upp þverfaglegt samstarf milli lyfjafræði og verkfræði innan háskólans. Mér finnst spennandi að beita verkfræðilegum lausnum á verkefni á öðrum sviðum.“
Fjóla segir að fyrstu niðurstöður fyrir einföld kerfi liggi fyrir „og við erum að skrifa tímaritsgrein sem verður send til birtingar á árinu. Næsti áfangi verkefninu er að búa til líkan fyrir flóknari og raunveruleg lækningatæki í framtíðinni. Við erum bjartsýn á að það takist.“
Fjóla segir að nýjar aðferðir sem þessar við lyfjagjöf séu líklegar til að auka lífsgæði margra sjúklinga, sem er mikilvægt, bæði fyrir viðkomandi instaklinga og samfélagið í heild. „Líkön af flóknum kerfum af þessu tagi eru sem stendur ekki til en þau eru að sama skapi mikilvæg tæki til að flýta fyrir þróun þessara kerfa.“