Alfons Ramel, fræðimaður við Rannsóknastofu í næringarfræði
„Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka hvort og að hve miklu leyti mælingar á líkamssamsetningu, blóði, sálfræðilegum þáttum og kvíða, sem gerðar eru við forskoðun í upphafi offitumeðferðar á Reykjalundi, hafi forspárgildi um árangur fólks í sjálfri meðferðinni,“ segir Alfons Ramel, fræðimaður við Rannsóknastofu í næringarfræði, um rannsókn sem ber heitið Árangur í offitumeðferð Reykjalundar. Auk hans koma þau Þórhallur Ingi Halldórsson, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild, Auður Benediktsdóttir, meistaranemi í næringarfræði, Ludvig Georgsson læknir og Guðrún Jóna Bragadóttir næringarráðgjafi að rannsókninni.
Alfons Ramel
„Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka hvort og að hve miklu leyti mælingar á líkamssamsetningu, blóði, sálfræðilegum þáttum og kvíða, sem gerðar eru við forskoðun í upphafi offitumeðferðar á Reykjalundi, hafi forspárgildi um árangur fólks í sjálfri meðferðinni.“

Offita er skilgreind út frá svokölluðum líkamsþyngdarstuðli sem reiknaður er út frá hlutfalli hæðar og þyngdar viðkomandi. Fólk telst glíma við offitu ef stuðullinn er yfir 30 og þegar hann nær 40 er talað um alvarlega offitu. Alfons bendir á að sá hópur taki yfirleitt ekki þátt í faraldsfræðilegum rannsóknum. „Okkur fannst mikilvægt að rannsaka betur þennan hóp sem glímir við mörg heilsufarsvandamál. Gögnin sem voru notuð í rannsókninni voru þegar fyrir hendi hjá Reykjalundi og því fannst okkur frábært að fá tækifæri til að nýta þau,“ útskýrir Alfons.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að af 290 konum sem hófu offitumeðferð á Reykjalundi duttu 113 út á undirbúningsstigum hennar en brottfall var m.a. tengt þunglyndi og hækkuðum blóðsykri. „Hjá einstaklingum sem kláruðu meðferðina var þyngdartap að meðaltali 9–10 kíló og af þessum hóp fóru svo 44% áfram í magahjáveituaðgerð. Rúmlega sjö sinnum meiri líkur voru á að þeir sem voru með líkamsþyngdarstuðul yfir 50 færu í aðgerð en þeir sem voru með stuðul undir 40,“ bendir Alfons á.
Alfons segir að rannsóknin sýni einnig að heilsa þeirra sem fara í offitumeðferð sé almennt slæm. „Mikilvægt er að geðheilsan sé í lagi til þess að árangur náist í offitumeðferð. Okkur finnst mikilvægt að grípa inn í fyrr, áður en fólk verður alvarlega of feitt,“ segir Alfons að lokum.