Gunnar E. Finnbogason, prófessor við Kennaradeild
„Rannsóknin snýst um að kanna lífsviðhorf og gildismat ungs fólks, sem er 18 ára eða eldra, í framhaldsskólum. Athyglin beinist sérstaklega að nokkrum meginþemum, þ.e. lífsviðhorfum, sjálfsmynd og líðan, samskiptum og afstöðu til annarra, gildum og gildismati og margbreytileika,“ segir Gunnar E. Finnbogason, prófessor við Kennaradeild, um rannsókn sem hann hefur unnið að frá árinu 2010.
Auk Gunnars koma Gunnar J. Gunnarsson, Hanna Ragnarsdóttir og Halla Jónsdóttir að rannsókninni en þau starfa öll á Menntavísindasviði. „Nálgunin er þverfagleg og við erum með ólíkan fræðilegan bakgrunn, m.a. í trúaruppeldisfræði, uppeldisfræði, fjölmenningarfræði og hugmyndasögu,“ bendir Gunnar á.
Gunnar E. Finnbogason
„Rannsóknin snýst um að kanna lífsviðhorf og gildismat ungs fólks, sem er 18 ára eða eldra, í framhaldsskólum.“

Gunnar segir skorta rannsóknir á lífsviðhorfum og gildismati ungs fólks í ljósi þeirrar samfélagsþróunar sem orðið hefur hér á landi á undanförnum árum og úr því vilji rannsóknarhópurinn bæta. Hópurinn hefur þegar gert viðhorfskönnun í framhaldsskólum landsins þar sem m.a. var spurt um mikilvægi trúarbragða í samfélaginu, hvort taka skuli tillit til ólíkra hefða fólks eftir menningu og trú og hvort frelsis- og mannréttindabarátta sé mikilvæg í huga þátttakenda.
„Niðurstöðurnar sýna m.a. að þrátt fyrir samfélagsbreytingar telur unga fólkið að fjölskyldan hafi meiri áhrif á viðhorf sín en vinirnir. Þá segir stór hluti svarenda lærdómsríkt að eiga vini af ólíkum uppruna og tekur mjög ákveðna afstöðu gegn kynþáttafordómum,“ segir Gunnar. Hann bætir við að niðurstöður könnunarinnar bendi einnig til þess að margir þátttakenda virðist vera jákvæðir gagnvart trúarlegum margbreytileika og fjölhyggju sem blasir við hjá ungu fólki í dag.
Aðspurður um mikilvægi rannsóknarinnar segir Gunnar mikilvægt fyrir kennaramenntunarstofnanir að fá aukna vitneskju um lífsviðhorf og gildismat ungs fólks, þá sérstaklega í ljósi þeirrar menntastefnu sem innleiða á með nýrri námskrá.