Skip to main content

Áhrif olíu á lífríki sjávar

Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Sandgerði

„Á komandi árum má búast við auknum skipasiglingum á norðurslóðum í kjölfar opnunar nýrra siglingaleiða. Óhjákvæmilega fylgir þessum skipaflutningum aukið mengunarálag og þar við bætist fyrirhuguð olíuleit og -vinnsla á norðurslóðum. Helst má búast við mengun af völdum svokallaðra PAH-efna sem finnast m.a. í olíum og myndast við bruna á lífrænu eldsneyti. Mörg þessara efna eru eitruð og geta verið krabbameinsvaldandi,“ segir Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Sandgerði. 

Hann tekur þátt í samnorrænni rannsókn þar sem ætlunin er annars vegar að kortleggja útbreiðslu og uppruna PAH-efna í lífríki ósnortinna strandsvæða á norðurslóðum og hins vegar að rannsaka áhrif efnanna á sjávarlífverur. Auk hans koma Hrönn Jörundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Matís, og Jörundur Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild, að rannsókninni hér á landi.

Halldór Pálmar Halldórsson

Halldór tekur þátt í samnorrænni rannsókn þar sem ætlunin er annars vegar að kortleggja útbreiðslu og uppruna PAH-efna í lífríki ósnortinna strandsvæða á norðurslóðum og hins vegar að rannsaka áhrif efnanna á sjávarlífverur.

Halldór Pálmar Halldórsson

„Við höfum safnað kræklingi og þorski hér við land, við Noreg, Svíþjóð, Færeyjar og Grænland til efnamælinga en tilraunir með olíu og mælingar á líffræðilegum áhrifum fóru fram á rannsóknasetrinu í Sandgerði, “ segir Halldór. Þar voru margvísleg sýni tekin úr kræklingi, þorski og sandhverfu yfir nokkurra vikna tímabil en dýrin voru höfð í búrum sem dælt var í olíumenguðum sjó. „Með því að beita mörgum líffræðilegum mælikvörðum, allt frá frumuskemmdum til virkni heilla lífvera, er mögulegt að greina hvort mengunin hafi áhrif á lífverurnar og hversu fjölbreytilegt mengunarálagið er,“ útskýrir Halldór. 

„Styrkur PAH-efna í kræklingi og þorski var oftast lágur og útbreiðsla efnanna á ósnortnum strandsvæðum norðurslóða reyndist áþekk á milli landa. Samsetning ríkjandi PAH-efna bendir til þess að bruni á lífrænu eldsneyti sé helsta uppspretta PAH-mengunar,“ segir Halldór um niðurstöður rannsóknarinnar. Hann segir enn fremur að nú standi yfir úrvinnsla gagna úr olíutilraununum í Sandgerði „en þegar hafa komið í ljós neikvæð áhrif á frumur og erfðaefni dýranna.“ 

Rannsóknin hefur hlotið styrk frá bæði Norrænu ráðherranefndinni og Verkefnasjóði sjávarútvegsins og er að sögn Halldórs afar mikilvæg. „Verkefnið er mikilvægur grunnur til framtíðar fyrir rannsóknir og vöktun á mengunarálagi á norðurslóðum,“ segir hann.