Trausti Valsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarfræðideild
Mjög áhugaverð grein eftir þá Trausta Valsson og Guðmund Frey Úlfarsson birtist í hinu virta tímariti Future. Við tókum Trausta tali og spurðum hann um kveikjuna að rannsókninni sem fjallað er um í tímaritinu. Trausti segir að upphafið megi rekja til bókarinnar „How the World will Change – with Global Warming“ sem Trausti sendi frá sér árið 2006. „Þá þegar var ljóst að mikilla rannsókna væri þörf á áhrifum hnattrænnar hlýnunar á samgöngur, skipulag og verklegar framkvæmdir,“ segir Trausti, sem er prófessor í skipulagsfræðum við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild. Félagi hans í rannsókninni, Guðmundur Freyr Úlfarsson, er einnig prófessor við sömu deild en í samgönguverkfræði.
Trausti Valsson
„Ef hlýnunin verður jafnmikil og spáð er, verða miklar breytingar á búsetuhæfum svæðum á hnettinum.“

„Ef hlýnunin verður jafnmikil og spáð er, verða miklar breytingar á búsetuhæfum svæðum á hnettinum,“ segir Trausti. „Hvað samgöngur á sjó áhrærir þýðir það að þegar ís á Norðurpólnum hörfar opnast t.d. nýjar siglingaleiðir yfir í Kyrrahafið. Með þessu kæmist Ísland í miklu betra samband við siglingakerfi heimsins,“ segir Trausti. Hann segir að nemendur sínir og Guðmundar Freys hafi unnið töluvert að kortagerð við þetta verkefni um árabil og Siglingastofnun og hafísdeild Veðurstofunnar hafi líka veitt mikilvæga aðstoð.
„Rannsóknir á áhrifum hnattrænnar hlýnunar hafa að mestu fjallað um áhrif á náttúruna eða á einstök svæði. Hingað til hefur lítið verið rannsakað hver áhrif hnattrænnar hlýnunar verða á búsetu. Vísindasamfélagið hefur of lítið kannað þessa þætti sem eiga eftir að hafa gríðarmikil áhrif á alla þróun búsetu og samgangna,“ segir Trausti.