Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild
Loftslagshlýnun og áhrif hennar á lífríki og vistkerfi eru aðkallandi vandamál sem okkur ber að skilja,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor í vatnalíffræði. Hann hefur, ásamt hópi annarra vatnalíffræðinga, rannsakað áhrif loftslagshlýnunar á lífríki straumvatns í lindalækjum, nánar tiltekið í upptakakvíslum Hengladalsár í Henglinum.
Gísi Már Gíslason
Gísli hefur, ásamt hópi annarra vatnalíffræðinga, rannsakað áhrif loftslagshlýnunar á lífríki straumvatns í lindalækjum, nánar tiltekið í upptakakvíslum Hengladalsár í Henglinum.

Með lækjunum gafst í fyrsta skipti tækifæri til þess að gera tilraunir í náttúrunni. „Lindalækirnir eru allir svipaðir að stærð, með sömu eðlisfræðilegu og efnafræðilegu einkenni, fyrir utan það að hiti þeirra er ólíkur,“ segir hann. Þannig var hægt að bera saman og rannsaka áhrif hita- og áburðaraukningar á samfélög þörunga, plantna, smádýra og fiska við mismunandi hita.
Gísli Már hefur starfað að rannsókninni í samstarfi við bandaríska, danska, enska og skoska háskóla og rannsóknastofnanir. Þegar hafa komið út tíu greinar í alþjóðlegum tímaritum um heitu lækina og fleiri eru í farvatninu, auk þess sem rannsóknin hefur verið kynnt á innlendum og erlendum rannsóknaþingum. „Með niðurstöðunum verður hægt að gera sér grein fyrir afleiðingum loftslagshlýnunar í straumvötnum og menguðum ám í Evrópu.“