Sigrún Broddadóttir, meistaranemi í menntunarfræðum
„Það er lykilatriði að unga fólkið og foreldrar þess séu virt og viðurkennd sem mikilvægasti hlekkurinn í undirbúningsferlinu og upplifi að þjónustuskrifstofan sé að vinna með þeim frá fyrsta degi,“ segir Sigrún Broddadóttir sem er að ljúka meistaranámi í menntunarfræði við Menntavísindasvið.
Sigrún Broddadóttir
„Niðurstöður sýna að ákveðnir þættir virtust hafa áhrif á hvernig unga fólkinu gekk að aðlagast nýju heimili. Þetta eru þættir eins og stuðningur frá fjölskyldu og vinum, möguleikinn á að tjá sig, persónueinkenni eins og jákvæð sjálfsmynd, sjálfsöryggi og trú á eigin styrk og að síðustu gott og vel þjálfað starfsfólk.“

Sigrún hefur rannsakað upplifun og reynslu fólks með þroskahömlun sem hefur flutt úr foreldrahúsum, svo og upplifun foreldra þess. Hún vill með rannsókninni varpa ljósi á hvernig unga fólkinu gekk að aðlagast nýju heimili og draga saman helstu atriði sem þjónustuveitandi þarf að hafa í huga þegar kemur að því að undirbúa og styðja ungt fólk með þroskahömlun sem er að flytja í búsetu á hans vegum.
„Niðurstöður sýna að ákveðnir þættir virtust hafa áhrif á hvernig unga fólkinu gekk að aðlagast nýju heimili. Þetta eru þættir eins og stuðningur frá fjölskyldu og vinum, möguleikinn á að tjá sig, persónueinkenni eins og jákvæð sjálfsmynd, sjálfsöryggi og trú á eigin styrk og að síðustu gott og vel þjálfað starfsfólk,“ segir Sigrún. Hún segir að þeim sem hafi gengið best að aðlagast nýju heimili og upplifa heimilið sem sitt hafi verið þátttakendur sem starfsfólkið virti og viðurkenndi sem fullorðið fólk og vann markvisst að því að efla til sjálfsákvörðunartöku og sjálfstæðis í daglegu lífi.
Gagna var aflað með því að taka viðtöl og gera þátttökuathuganir. Lykilþátttakendur í rannsókninni voru sjö fjölskyldur, ungt fólk með þroskahömlun sem flutti að heiman á árunum 2005-2006 og foreldrar þess.
Leiðbeinandi: Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, dósent á Menntavísindasviði.
Sigrún lauk meistaranámi árið 2010.