Sigurður Kári Árnason, Mag. Jur frá Lagadeild
„Hornsteinn lýðræðis er að valdhafar beri ábyrgð í samræmi við völd sín og þurfi sjálfir að fylgja sömu reglum og þeir setja öðrum. Stjórnsýslan á Íslandi er orðin viðamikil og samfélagið gerir kröfur um að hún verndi almannahagsmuni með því að vera með sterkt velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfi. Samfélagið gerir einnig kröfur um að stjórnsýslan haldi efnahagslífi stöðugu og setji reglur um viðskipti. Ráðherrar bera æðstu völd og því fylgir ábyrgð,“ segir Sigurður Kári Árnason lögfræðingur sem skoðaði réttargrundvöllinn fyrir þessari ábyrgð í meistararitgerð sinni um athafnaskyldur ráðherra til að vernda almannahagsmuni á grundvelli stjórnunar- og eftirlitsheimilda þeirra.
Sigurður Kári Árnason
„Stjórnsýslan á Íslandi er orðin viðamikil og samfélagið gerir kröfur um að hún verndi almannahagsmuni með því að vera með sterkt velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfi.“

Sigurður segir efnahagshrunið haustið 2008 hafa haft mikil áhrif á námið og viðhorf sitt til lögfræðinnar almennt. Áhuginn á efni ritgerðarinnar hafi kviknað þegar hann sat fyrirlestur hjá Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni Alþingis, sem fjallaði um stjórnsýslukerfið og ábyrgð innan þess.
Ritgerðin snýst um völd og ábyrgð ráðherra í stjórnsýslunni. Áhersla er lögð á ábyrgð ráðherra til forvirkra aðgerða til að vernda almannahagsmuni. „Rannsóknin tengist að vissu leyti efnahagshruninu og aðdraganda þess en hún hefur einnig víðtækari tilvísanir eins og t.d. hvort ráðherrum beri skylda til ýmissa forvarna, eins og rýmingaráætlana vegna eldgosa eða viðbragðsáætlana vegna smitsjúkdóma,“ segir Sigurður Kári.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að ráðherrum, sem æðstu yfirmönnum stjórnsýslunnar, beri skylda til að vernda almannahagsmuni. Eftirlit ráðherra með stofnunum þurfi hins vegar að ríma við ábyrgð þeirra gagnvart Alþingi. „Lögin eru engu að síður ekki alveg skýr hvað varðar upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra gagnvart Alþingi. Að mínu mati er sú skylda hins vegar nauðsynleg til að tryggja að Alþingi fái í hendur mikilvægar upplýsingar til að geta síðan brugðist við með lagasetningu og tekið ákvarðanir til að vernda almannahagsmuni, hagsmuni borgaranna sem hafa veitt Alþingi umboð sitt til slíkra ákvarðana. Þetta verður eðlileg keðja ábyrgðar og eftirlits en það er einmitt oft í svona langri keðju með mörgum hlekkjum sem eitthvað klikkar, sem einhver hlekkurinn brestur,“ segir Sigurður Kári.
Leiðbeinandi: Trausti Fannar Valsson, lektor við Lagadeild.