Skip to main content

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2024

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2024 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. júní 2024 10:00 til 15:30
Hvar 

Laugardalshöll

Nánar 
Hver kandídat er með númerað sæti
Hver kandídat má taka með sér tvo gesti.

Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 15. júní.

Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir og er hún opin bæði brautskráningarkandídötum og gestum þeirra.

Kandídatar eru beðnir um að mæta eigi síðar en 30 mínútum fyrir athöfn. Hver kandídat má taka með sér tvo gesti.

Fyrri athöfnin hefst kl. 10 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið og Hugvísindasvið við prófskírteinum.

Bein útsending frá fyrri athöfn

Sú síðari hefst kl. 13.30 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið við skírteinum sínum.

Bein útsending frá seinni brautskráningarathöfn

Athugið að með því að taka þátt í brautskráningarathöfn skuldbinda kandídatar sig til að yfirgefa ekki salinn fyrr en að athöfn lokinni.

Brautskráningarkandídatar fá sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna þegar nær dregur.

Bréf vegna fyrri athafnar

Bréf vegna seinni athafnar

Starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum á brautskráningunni og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 15. júní.

Vorbrautskráning Háskóla Íslands 2024