Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2025

Aðalbygging
Hátíðasalur
Vísinda- og nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2025 verða afhent mánudaginn 12. maí kl. 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.
Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 27. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, ÁrnasonIFaktor og Auðnu - tæknitorgs.
Alls bárust nærri 40 tillögur í samkeppnina að þessu sinni og veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar verður valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.
Viðburðurinn er hluti af nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2025.
Vísinda- og nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2025 verða afhent mánudaginn 12. maí kl. 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.
