Skip to main content

Vilborg Davíðsdóttir: Garðaríki, suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf

Vilborg Davíðsdóttir: Garðaríki, suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. nóvember 2023 18:00 til 19:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur VHV-023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 9. nóvember mun rithöfundurinn Vilborg Davíðsdóttir verða gestur Úkraínuseturs Háskóla Íslands og segja frá rannsóknum sínum á sögu Úkraínu. Sögulegar skáldsögur Vilborgar eru gott dæmi um listræna úrvinnslu á fornum menningararfi sem byggir á fjölbreytilegum heimildum og rannsóknum fræðimanna. Nýjasta bók hennar er Land næturinnar, þar sem Vilborg fjallar um Þorgerði Þorsteinsdóttir sem hefur lifað harm heima á Íslandi og heldur til Noregs þar sem örlögin leiða hana í faðm skinnakaupmannsins Herjólfs Eyvindarsonar. Saman halda þau til Garðaríkis, á fund væringja sem sigla suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf með ambáttir og loðfeldi á markað í Miklagarði.

 

Vilborg sýnir kort og myndir og segir frá ferðalagi sínu við ritun bókarinnar.

Öll velkomin í Auðarsal í Veröld 9. nóvember kl.18.00.