Verkalýðshreyfing, söguritun og mýtur

Hvenær
14. nóvember 2023 16:00 til 17:00
Hvar
Árnagarður
422
Nánar
Aðgangur ókeypis
Sumarliði Ísleifsson, dósent í hagnýtri menningarmiðlun í Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, heldur fyrirlestur í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist Verkalýðshreyfing, söguritun og mýtur. Málstofan er í stofu 422 í Árnagarði, þriðjudaginn 14. nóvember kl. 16:00-17:00.
Allir velkomnir
Um erindið:
Fjöldi verka hefur verið ritaður um íslenska verkalýðshreyfingu á undanförnum árum og áratugum. Í erindi sínu mun Sumarliði ræða um nokkur einkenni á þessari söguritun. Hvaða áherslur hafa komið þar fram og hvernig hefur mikilvægum þáttum í sögu hreyfingarinnar verið lýst? Sumarliði leggur mat á hvað er ógert á þessu sviði.
Sumarliði Ísleifsson, dósent í hagnýtri menningarmiðlun, í Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði.
