Skip to main content

Vefstofa: Ástæður háskólanema fyrir vali á fjarnámi og tengdar áskoranir

Vefstofa: Ástæður háskólanema fyrir vali á fjarnámi og tengdar áskoranir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. mars 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/66115640695?pwd=zPTJuNTzLL24w3BBY45Qosj2BlPWWO.1 (Fundarauðkenni: 661 1564 0695 / Lykilorð: vor2025)

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlesari: Verena Karlsdóttir, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri

Lýsing: Fjarnám hefur orðið sífellt mikilvægara eftir COVID-19 faraldurinn og kallar á dýpri skilning á hvata nemenda til að velja slíkt nám fram yfir staðnám. Þessi kynning fjallar um helstu ástæður þess að nemendur kjósa fjarnám og hvaða áskoranir því fylgja.

Í þessu samhengi var framkvæmd rannsókn við Háskólann á Akureyri (HA) með það að markmiði að greina þrjá lykilþætti sem hafa áhrif á val nemenda: sveigjanleika (e. flexibility), þekkingarframfarir (e. educational growth) og skilvirkni (e. efficiency). Niðurstöður sýna að þættir eins og kyn, aldur og búseta höfðu ekki marktæk áhrif á ákvörðun nemenda. Hins vegar höfðu fjölskylduaðstæður, svo sem það að eiga börn og vera í starfi samhliða námi, veruleg áhrif á viðhorf þeirra til fjarnáms.

Þemagreining varpar ljósi á væntingar og þarfir nemenda, helstu áskoranir sem þeir standa frammi fyrir og leiðir til að bæta fjarnám. Niðurstöður benda til þess að fjarnám þurfi að vera sveigjanlegt og sífellt í endurskoðun til að mæta breytilegum þörfum nemenda og tryggja að það samræmist kröfum nútímans. Með því að innleiða nýjungar í fjarnámi, byggðar á rannsóknum og raunverulegri reynslu svo sem raundæmum, geta háskólar eins og HA orðið leiðandi í menntun sem mætir síbreytilegum og vaxandi þörfum samfélagsins, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Sjá grein Verenu með niðurstöðunum:
View of Assessing University Students’ Motivation to Choose Distance Learning and the Challenges of Distance Learning. https://ejournals.vdu.lt/index.php/Pedagogika/article/view/6042/3586

Tími: Miðvikudagur, 19. mars kl. 12-13

Tungumál: Íslenska

Staður: Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/66115640695?pwd=zPTJuNTzLL24w3BBY45Qosj2BlPWWO.1
(Fundarauðkenni: 661 1564 0695 / Lykilorð: vor2025)

Vefstofan er í boði: Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands og Fjarska – Samtaka um fjarnám og stafræna kennsluhætti.

Fyrirlesari: Verena Karlsdóttir, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri Lýsing: Fjarnám hefur orðið sífellt mikilvægara eftir COVID-19 faraldurinn og kallar á dýpri skilning á hvata nemenda til að velja slíkt nám fram yfir staðnám. Þessi kynning fjallar um helstu ástæður þess að nemendur kjósa fjarnám og hvaða áskoranir því fylgja. Í þessu samhengi var framkvæmd rannsókn við Háskólann á Akureyri (HA) með það að markmiði að greina þrjá lykilþætti sem hafa áhrif á val nemenda: sveigjanleika (e. flexibility), þekkingarframfarir (e. educational growth) og skilvirkni (e. efficiency). Niðurstöður sýna að þættir eins og kyn, aldur og búseta höfðu ekki marktæk áhrif á ákvörðun nemenda. Hins vegar höfðu fjölskylduaðstæður, svo sem það að eiga börn og vera í starfi samhliða námi, veruleg áhrif á viðhorf þeirra til fjarnáms. Þemagreining varpar ljósi á væntingar og þarfir nemenda, helstu áskoranir sem þeir standa frammi fyrir og leiðir til að bæta fjarnám. Niðurstöður benda til þess að fjarnám þurfi að vera sveigjanlegt og sífellt í endurskoðun til að mæta breytilegum þörfum nemenda og tryggja að það samræmist kröfum nútímans. Með því að innleiða nýjungar í fjarnámi, byggðar á rannsóknum og raunverulegri reynslu svo sem raundæmum, geta háskólar eins og HA orðið leiðandi í menntun sem mætir síbreytilegum og vaxandi þörfum samfélagsins, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Sjá grein Verenu með niðurstöðunum:View of Assessing University Students’ Motivation to Choose Distance Learning and the Challenges of Distance Learning. https://ejournals.vdu.lt/index.php/Pedagogika/article/view/6042/3586 Tími: Miðvikudagur, 19. mars kl. 12-13 Tungumál: Íslenska Staður: Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/66115640695?pwd=zPTJuNTzLL24w3BBY45Qosj2BlPWWO.1(Fundarauðkenni: 661 1564 0695 / Lykilorð: vor2025) Vefstofan er í boði: Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands og Fjarska – Samtaka um fjarnám og stafræna kennsluhætti.

Vefstofa: Ástæður háskólanema fyrir vali á fjarnámi og tengdar áskoranir