Skip to main content

Útgáfuhóf: Lognmolla í ólgusjó

Útgáfuhóf: Lognmolla í ólgusjó - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. desember 2024 16:30 til 18:00
Hvar 

Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bókin Lognmolla í ólgusjó: Alþingiskosningarnar 2021 og kjósendur í áranna rás er nýkomin út hjá Háskólaútgáfunni. Af því tilefni bjóða höfundar bókarinnar í útgáfuhóf fimmtudaginn 12. desember kl. 16:30-18:00 í bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39. Bókin verður seld á tilboðsverði. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Bókin leiðir lesendur í ferðalag um íslensk stjórnmál. Hér leita höfundar svara við spurningum sem gjarnan eru ræddar í heitum pottum landsins: Hvað gæti ráðið mestu um hvað fólk kýs? Er eitthvað að marka fylgiskannanir? Hafnar unga fólkið hefðbundnum stjórnmálum? Er gjá milli frambjóðenda og kjósenda? Er neikvæðni í kosningabaráttu að aukast? Og hvernig hefur þetta allt verið að breytast á undanförnum árum og áratugum?

Árið 2021 lék heimsfaraldur heiminn grátt en í íslenskum stjórnmálum ríkti loks lognmolla eftir óróleika eftirhrunsáranna. Með einstökum gögnum Íslensku kosningarannsóknarinnar eru alþingiskosningarnar 2021 notaðar sem útgangspunktur til að skoða stjórnmálaþróun síðustu áratuga og hvers megi vænta í þróun lýðræðis á næstu árum.

Höfundar bókarinnar, þau Hulda Þórisdóttir, Agnar Freyr Helgason, Eva H. Önnudóttir, Jón Gunnar Ólafsson og Ólafur Þ. Harðarson sitja í stjórn Íslensku kosningarannsóknarinnar (ÍSKOS) og eru öll fræðimenn við Háskóla Íslands. Þau unnu bókina í sameiningu en Hafsteinn Einarsson er meðhöfundur að einum kafla. 

„Útkoma þessarar bókar er mikið fagnaðarefni fyrir öll okkar sem höfum áhuga á stjórnmálum. Hér birtast ítarlegar rannsóknir helstu fræðimanna okkar sem greina og skýra hvað gerðist í alþingiskosningunum 2021, skrifaðar á tungumáli sem allir geta skilið. En bókin er miklu meira en það, hér er skýr innsýn í viðhorf og væntingar kjósenda til lýðræðisins og stjórnmálaþátttöku undanfarna áratugi – og margt fleira. Bókin á ekki bara erindi til fræðimanna heldur og alls almennings. Hún er í raun ómissandi fyrir allt áhugafólk um stjórnmál.“

- Bogi Ágústsson fréttamaður

Bókina er að finna hér: https://haskolautgafan.is/products/lognmolla-i-olgusjo-althingiskosningarnar-2021-og-kjosendur-i-aranna-ras

 

Höfundar bókarinnar, þau Hulda Þórisdóttir, Agnar Freyr Helgason, Ólafur Þ. Harðarson, Eva H. Önnudóttir og Jón Gunnar Ólafsson sitja í stjórn Íslensku kosningarannsóknarinnar (ÍSKOS) og eru öll fræðimenn við Háskóla Íslands.

Útgáfuhóf: Lognmolla í ólgusjó