Útgáfuhóf: Dauðadómurinn
Háskólatorg
Bóksala stúdenta
Efnt verður til útgáfuhófs vegna útgáfu bókarinnar Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
Haldið í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi, fimmtudaginn 28. nóvember kl. 16:00-17:00. Verið öll velkomin.
Í bókinni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Sjöundármál eru almenningi vel kunn en þeim hefur margsinnis verið lýst út frá sjónarhorni yfirvalda. Í bókinni segir Bjarni hins vegar sjálfur frá æviskeiði sínu um leið og lífshlaup hans er tengt við tíðaranda 18. aldar. Frásögnin endar á aftöku Bjarna í Kristiansand í Noregi.
Steinunn Kristjánsdóttir er prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Eftir hana liggja verðlaunabækurnar Sagan af klaustrinu á Skriðu (2012) og Leitin að klaustrunum (2017) sem Sögufélag gaf út. Þá gaf Routledge út bók hennar Monastic Iceland (2023). Háskólaútgáfan gefur bókina um Bjarna út en hún byggir á rannsókn Steinunnar á aftökum eftir siðaskipti á Íslandi.
Efnt verður til útgáfuhófs vegna útgáfu bókarinnar Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði við Háskóla Íslands.