Umferðin & okkar daglega líf - Borgarhönnun og samgöngumál
![Umferðin & okkar daglega líf - Borgarhönnun og samgöngumál - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/mynd_ur_sal_14.feb_.png?itok=Owr6heDU)
Gróska
Stóri salur
Vísindagarðar HÍ standa fyrir viðburðaröð sem nefnist Umferðin & okkar daglega líf þar sem fjallað er um samgöngumál og lausnir. Markmiðið er að efna til samtals um samgöngur í okkar nærumhverfi og vilja Vísindagarðar leggja sitt af mörkum í þeirri miklu umræðu sem nú á sér stað um þróun samgöngumála og hvernig aðrir kostir en einkabíllinn geti verið hagkvæmari.
Á þessum viðburði, sem fram fer í stóra salnum i Grósku þriðjudaginn 23. apríl kl. 8.45-11, verða borgarhönnun og samgöngumál í forgrunni og er dagskrá unninn í tengslum við HönnunarMars 2024. Við fáum til okkar borgarhönnuð og arkitekta sem segja frá vinnu sinni í tengslum við borgarhönnun og stærri þróunarverkefni sem eru í mótun.
Öll eru velkomin en endilega skráið ykkur svo við getum áætlað rétt magn veitinga.
Á viðburði sem fram fer í stóra salnum i Grósku þriðjudaginn 23. apríl kl. 8.45-11, verða borgarhönnun og samgöngumál í forgrunni og er dagskrá unninn í tengslum við HönnunarMars 2024.
![Umferðin & okkar daglega líf - Borgarhönnun og samgöngumál](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/vjq45.jpg?itok=d6Ew9mOH)