Skip to main content

TUM tímarit - Útgáfuhóf

TUM tímarit - Útgáfuhóf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. febrúar 2024 15:00 til 17:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Stofa H-101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Út er kominn 32. árgangur Tímarits um Uppeldi og menntun og af því tilefni verður blásið til útgáfu- og kynningarhófs miðvikudaginn 14. febrúar klukkan 15:00 í stofu H - 101 á Menntavísindasviði í Stakkahlíð.

Tvær greinar úr nýjasta ritinu verða kynntar ásamt einni grein úr hausthefti 2022.

  • Sólveig Björg Pálsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson kynna grein sína „Drasl sem gull“: Áhersla leikskóla á opinn efnivið og val barna á leikjum í kynjafræðilegu ljósi.
  • Álfheiður Tryggvadóttir og Sigrún Gunnarsdóttir kynna grein sína „Þetta er bara að hoppa út í djúpu laugina og gera sitt besta“: Upplifun og líðan grunnskólakennara í upphafi starfs.
  • Þóra Björg Sigurðardóttir kynnir grein sína „Er ég að gera vel í lífinu?“: Siðfræði og sjálfsþekking í Gísla sögu Súrssonar.

Boðið verður upp á léttar veitingar að kynningum loknum

Hlökkum til að sjá ykkur

Sjá nánari upplýsingar