Stjórnmál & stjórnsýsla - útgáfa haustheftis
![Stjórnmál & stjórnsýsla - útgáfa haustheftis - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__KRI4734.jpg?itok=B2j-eRvz)
Oddi
Oddi 101
„Segðu satt“: Pólitískt traust og væntingar til stjórnmálafólks á Íslandi, 2020-2023
Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 2. tbl. 19. árg. tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla verður haldið fimmtudaginn 14. desember, kl. 16.30, í Odda 101, í HÍ.
Við opnunina kynna þau Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við University of Southampton og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, grein þeirra um þróun trausts til íslensks stjórnmálafólks með áherslu á tvær ólíkar uppsprettur þess: hæfni annars vegar og heilindi hins vegar. Unnið er með gögn úr könnunum tímabilið 2020-2023.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.
Öll velkomin.
„Segðu satt“: Pólitískt traust og væntingar til stjórnmálafólks á Íslandi, 2020-2023 Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 2. tbl. 19. árg. tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla verður haldið fimmtudaginn 14. desember, kl. 16.30, í Odda 101, í HÍ. Við opnunina kynna þau Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við University of Southampton og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, grein þeirra um þróun trausts til íslensks stjórnmálafólks með áherslu á tvær ólíkar uppsprettur þess: hæfni annars vegar og heilindi hins vegar. Unnið er með gögn úr könnunum tímabilið 2020-2023. Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda. Öll velkomin.
![Stjórnmál & stjórnsýsla - útgáfa haustheftis](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/w9qb5.jpg?itok=oMAhrpPm)