Skip to main content

Stefnumót stjórnenda hjá skóla- og frístundasviði og rannsakenda á Menntavísindasviði

Stefnumót stjórnenda hjá skóla- og frístundasviði og rannsakenda á Menntavísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. febrúar 2025 14:00 til 15:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Stofa K-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ert þú með hugmynd að verkefni og ert að leita að þverfaglegu samstarfi? Komdu þá á stefnumótið til að búa til tengingar sem ekki voru áður til staðar milli kennara/rannsakenda hjá MVS og stjórnenda hjá SFS og/eða búa til ný verkefni eða vinkla á verkefni sem hafa ekki áður verið til staðar. 

Þróunarsjóður skóla- og frístundaráðs mun úthluta 50 m.k. til B-hluta verkefna árið 2025, en verkefnin þurfa að tengjast rannsóknum eða samstarfi við háskólasamfélagið. 

 Dagskrá 

14:00    Hjörtur Ágústsson, skrifstofustjóri Nýsköpunar og þróunar a Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar  opnar stefnumótið, segir aðeins frá sjóðnum og fyrirkomulagi stefnumótsins 

14:15    Áhugasamir segja í örstuttu máli frá hugmynd/verkefni sínu og hvaða samstarfsaðilum leitað er eftir 

 14: 30   Myndum tengingar 

 15:30    Lok stefnumóts - en upphaf nýrra verkefna sem sótt verður um í sjóðinn 

 Léttar veitingar í boði 

Til að áætla fjölda og til að fá smá yfirlit yfir þátttakendur og hugmyndir (ef einhvejar eru), þá endilega skráið ykkur til leiks hér

  

Nánar um þróunarsjóðinn 

Ákveðið hefur verið að Þróunarsjóður skóla- og frístundaráðs lækki tímabundið í 50 m.kr. Heildarúthlutun á fjárhagsárinu 2025 verður því 50 m.k. 

Í ljósi þess hefur verið ákveðið að úthluta ekki styrkjum til A-hluta verkefna sem fram á öllum starfsstöðum og þess í stað verður öllu fjármagni ársins úthlutað til B-hluta verkefna sem til upprifjunar eru stærri samstarfsverkefni þar sem minnst 2 starfsstaðir vinna saman að verkefni yfir 1-3 skólaár. 

Forsenda styrkveitingar er að verkefnin byggi á Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósið er virkni og þátttaka barna, fagmennska og samstarf. Grundvallarþættir stefnunnar eru fimm: félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði og skulu þróunar- og nýsköpunarverkefni tengjast einum eða fleirum þessara þátta. 

Umsóknarfrestur um B-hluta verkefni verður 15. mars 2025 fyrir verkefni sem hefjast 1. júní eru eru til 12 mánaða. 

Á vef Menntastefnu Reykjavíkur má finna nánari upplýsingar um B-hluta styrki, reglur sem gilda um styrkina, umsóknaeyðublað og leiðbeiningar. https://menntastefna.is/throunarsjodur/ 

Nánari upplýsingar veitir:  

Unnur Björk verkefnisstjóri starfsþróunar á Menntavísindasviði: unnurbjork@hi.is