Skip to main content

Stafrænar aðgerðir og frásagnarlist í tengslum við loftslagsbreytingar

Stafrænar aðgerðir og frásagnarlist í tengslum við loftslagsbreytingar  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. október 2023 10:30 til 14:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Digital Action and Storytelling for Climate Change: Engaging Communities with Digital Tools, Educational Tourism, Community-Based Research, and Digital Cultural Heritage er málþing sem Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista á aðild að og er opið öllum. Þingið er haldið í Öresund í Svíþjóð 5. október kl. 10:30-14:00 (íslenskur tími) en hægt verður að taka þátt í því í gegnum netið.

Dagskrá málþingsins (pdf-skjal). Ath. að tímasetningar í dagskrá miðast við sænskan tíma).

Áhugasöm eru beðin um að skrá þátttöku í síðasta lagi 2. október.

Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista er meðal þátttakenda í verkefninu Digital Action on Climate Change with Heritage Environments (DACCHE) með samstarfsaðilum frá Færeyjum, Svíþjóð, Noregi og Írlandi. Verkefnið, sem er styrkt af Norðurslóðaáætlun ESB og er til þriggja ára, snýst um að draga fram staðbundna þekkingu og nýta stafræna tækni til að gera samfélögum kleift að varðveita menningarlandslag og sýna hvernig það lagar sig að loftslagsbreytingum. En einnig til að skipuleggja framkvæmdaáætlanir við endurheimt landgæða í ljósi hraðra breytinga á umhverfinu. Þessar breytingar geta ógnað menningu, menningararfi og samfélagi á svæðum þar sem en stofnanir sem miðla menningararfinum eru lykilaðilar við að hvetja íbúa og ferðamenn til aukinnar vitundar og aðgerða.

Digital Action and Storytelling for Climate Change: Engaging Communities with Digital Tools, Educational Tourism, Community-Based Research, and Digital Cultural Heritage er málþing sem Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista (MSHL) á aðild að og er opið öllum. Þingið er haldið í Öresund í Svíþjóð 5. október kl. 10:30-14:00 (íslenskur tími) en hægt verður að taka þátt í því í gegnum netið.

Stafrænar aðgerðir og frásagnarlist í tengslum við loftslagsbreytingar