Stafræn þróun og lausnir í fyrirtækjum

Háskólatorg
Ingjaldsstofa, HT-101
Pétur Pálsson framkvæmdastóri Vísir hf verður með fyrirlestur þar sem fyrirtækið hlaut á dögunum Íslensku þekkingarverðlaunin 2018.
Verðlaunin hlaut Vísir hf. fyrir það að vera leiðandi í stafrænum lausnum og hafa með nýsköpun í tækni bætt rekstrarumhverfi fyrirtækisins. Með aukinni sjálfvirkni og tækni hefur Vísir bætt þjónustu, afköst og framleiðni en á sama tíma starfað í sátt við samfélagið með ríka umhverfisvitund.
Vísir hf. er sjávarútvegsfyrirtæki þar sem áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátækni og hágæða vöru.
Pétur mun fjalla um hvernig innleiðing stafrænna lausna hefur átt sér stað og hvernig fyrirtækið hefur aðlagað sig að 4. iðnbyltingunni og aukið framleiðni, ánægju starfsmanna og viðskiptavina, allt á sama tíma.
Fyrirlesturinn er á vegum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands og Félags viðskipta- og hagfræðinga.