Sjálfbærnireglur ESB: Heildarmyndin
Hvenær
6. nóvember 2024 12:00 til 13:00
Hvar
Lögberg
L-101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Með reglum ESB um sjálfbær fjármál voru tekin mikilvæg og metnaðarfull skref til þess að auka flæði fjármagns til sjálfbærrar atvinnustarfsemi á EES-svæðinu. Í fyrirlestrinum verða þessum reglum ESB gerð skil í breiðu samhengi, þ.m.t. hvaða skyldur þær hafa í för með sér, hvernig þær spila saman og hvaða áhrif þeim er ætlað að hafa í hagkerfinu.
Fyrirlesturinn höfðar ekki síst til lögfræðinga og annarra sem fást við sjálfbærnireglur ESB í störfum sínum. Efnið á jafnframt erindi til nemenda og annarra sem áhuga hafa á umhverfismálum og sjálfbærni í víðu samhengi.
Fyrirlesari er Arnar Sveinn Harðarson verkefnastjóri hjá Arion banka.
Fyrirlesturinn höfðar ekki síst til lögfræðinga og annarra sem fást við sjálfbærnireglur ESB í störfum sínum.