Siðfræði lífs og dauða í 30 ár
![Siðfræði lífs og dauða í 30 ár - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/sidfraedivilhjstor.jpg?itok=T61tqJVe)
Hvenær
24. apríl 2024 13:30 til 17:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur (023)
Nánar
Aðgangur ókeypis
Siðfræðistofnun efnir til opins málþings í tilefni af útkomu 3. útgáfu bókarinnar Siðfræði lífs og dauða eftir Vilhjálm Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands.
Málþingið fer fram miðvikudaginn 24. apríl kl. 13:30 – 17:00 í Auðarsal (023) í Veröld. Verið öll velkomin.
Á dagskrá málþingsins verða sex málstofur sem hver um sig snýr að einstökum kafla bókarinnar Siðfræði lífs og dauða. Fyrirlesararnir hafa allir notað bókina í kennslu um árabil. Málstofurnar samanstanda af stuttu erindi og samtali við höfund bókarinnar Vilhjálm Árnason.
Dagskrá:
- 13:30–14: Hagnýting siðfræðinnar: Guðmundur Heiðar Frímannsson
- 14–14:30: Samskipti sjúklinga og heilbrigðisstétta: Aðalheiður Dagmar Matthíasdóttir
- 14:30–15:00: Ákvarðanir um meðferð og rannsóknir: Svava Sigurðardóttir
- Kaffihlé
- 15:30–16: Álitamál við upphaf lífs: Salvör Nordal
- 16–16:30: Álitamál við lok lífs: Svanur Sigurbjörnsson
- 16:30–17: Heilbrigðisstefna og lýðheilsa: Ástríður Stefánsdóttir
Siðfræðistofnun efnir til opins málþings í tilefni af útkomu 3. útgáfu bókarinnar Siðfræði lífs og dauða eftir Vilhjálm Árnason, prófessor emeritus í heimspeki við Háskóla Íslands.
![Siðfræði lífs og dauða í 30 ár](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/vjjgv.jpg?itok=eB4j2Uko)