Skip to main content

Samtal um skapandi greinar: Skapandi aðferðafræði

Samtal um skapandi greinar: Skapandi aðferðafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. janúar 2025 8:30 til 10:00
Hvar 

Húsakynni CCP í Grósku

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 9. janúar klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Skapandi aðferðafræði. Fundurinn verður haldinn á ensku og erindum verður streymt á þessum Facebook-viðburði.

Á fundinum mun Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi hjá CCP, tala um samstarf CCP við ýmsar alþjóðlegar rannsóknastofnanir og hvernig aðferðir leikjageirans hafa nýst þeim. Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, mun fjalla um mikilvægi félagslegs andrúmslofts, í formi félagslegra töfra, sem hann hefur greint með sjónrænni félagsfræði í bók sinni Sjáum samfélagið. Katrín Ólína Pétursdóttir, hönnuður og forseti hönnunardeildar LHÍ, mun fjalla um verkefnið Primitiva, rannsóknarverkefni í skartgripahönnun sem sameinar skapandi hugsun og stafræna tækni. Hún mun segja frá því hvernig tilraunir og frásagnarlist í mismunandi miðlum á ferli hennar áttu þátt í að móta skartgripalínu hennar.

Í kjölfar erinda verður opnað fyrir umræður meðal fundargesta.

Samtal um skapandi greinar er röð óformlegra funda sem RSG stendur að í samvinnu við CCP. Með fundaröðinni vill RSG skapa samræðuvettvang áhugafólks um skapandi greinar með því að tengja saman hagaðila í einkageiranum, akademíunni og frá stofnunum og stjórnsýslunni og efla þannig umræðuna um menningu og skapandi greinar.

Vinsamlegast skráið mætingu hér

Athugið að sætaframboð er takmarkað. Skráningu lýkur kl. 12 miðvikudaginn 8. janúar.

CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 9. janúar klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.

Samtal um skapandi greinar: Skapandi aðferðafræði