Skip to main content

Robert Z. Aliber fjallar um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða

Robert Z. Aliber fjallar um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. júní 2024 12:00 til 13:30
Hvar 

Oddi

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bandaríski hagfræðingurinn Robert Z. Aliber fjallar um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða í fyrirlestri þann 7. júní, kl. 12.00 - 13.30 í Odda, stofu 101.

Í fyrirlestri sínum mun Aliber fjalla um tengsl erlendra fjárfestingalífeyrissjóða og mynsturs viðskiptahalla og viðskiptaafgangs í heiminum og hvernig afgangur á viðskiptum eins lands skapar halla í viðskiptum annarra landa. Hann mun leitast við að svara þeirri spurningu hvort þjóðir Vesturlanda, sem horfa fram á fjölgun fólks á lífeyrisaldri, geti fjármagnað fyrirséða aukningu lífeyrisgreiðslna með erlendum fjárfestingum og hvaða erfiðleika slíkar fjárfestingar geta skapað í alþjóðahagkerfinu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. 

Umræður í lokin

Að loknum fyrirlestri Alibers munu Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og Lúðvík Elíasson, yfirmaður rannsókna- og spádeildar Seðlabanka Íslands, ræða um efni fyrirlestursins.

Fundurinn er öllum opinn. 

Robert Z. Aliber, prófessor emeritus, University of Chicago

Robert Z. Aliber fjallar um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða