Ráðstefna Þjóðarspegilsins 2024
Hvenær
31. október 2024 15:00 til 1. nóvember 2024 16:45
Hvar
Háskóli Íslands
Nánar
Aðgangur ókeypis
Ráðstefna Þjóðarspegilsins verður haldin 31. október og 1. nóvember
Ráðstefnan er vettvangur fyrir virkt samtal við samfélagið utan veggja háskólanna. Ráðstefna Þjóðarspegilsins veitir fræðafólki, sérfræðingum og öðrum tækifæri til að deila þekkingu, læra hvert af öðru, efla fagleg tengsl og samstarf á sviði félagsvísinda.
Hún er opin öllum sem hafa áhuga á félagsvísindum og er þátttakendum og öðrum áhugasömum að kostnaðarlausu.
Ráðstefnan verður haldin í húsakynnum Háskóla Íslands.
Mikilvægar dagsetningar:
- Kall eftir ágripum: 6. ágúst – 5. september 2024
- Niðurstaða ritrýni: 1. október 2024
- Dagskrá birt: 22. október 2024
- Ráðstefna: 31. október 15:00-16:30 og 1. nóvember 9:00-16:45
Kíktu á heimasíðu Þjóðarspegilsins fyrir nánari upplýsingar >
Þjóðarspegillinn 2024