Prófessorsfyrirlestur - Lárus S. Guðmundsson
Læknagarður
Stofa 201
Lárus S. Guðmundsson hlaut framgang í starf prófessors við Lyfjafræðideild Heilbrigðisvísindasviðs HÍ í lok júní 2024. í tilefni af tímamótunum heldur Lárus prófessorsfyrirlestur í Læknagarði (stofa 201) fimmtudaginn 28. nóvember milli kl. 15 og 16. Fyrirlesturinn, sem ber yfirskriftina Mígreni, svefnlyf og ópíóíðar, er öllum opinn.
Lárus stundaði doktorsnám við Læknadeild HÍ á árunum 2006-2010 og útskrifaðist með doktorspróf í líf- og læknavísindum. Verkefnið fjallaði um samband mígrenis, blóðþrýstings og bólgusvars við hjarta- og æðasjúkdóma. Lárus tók þátt í stofnun FEDON, Félag doktorsnema og Nýdoktora við Háskóla Íslands og sat í stjórn félagsins. Að loknu doktorsnámi fór Lárus til Bethesda í Maryland í Bandaríkjunum og vann við rannsóknir við National Institute on Aging / National Institutes of Health og Uniformed Services University of the Health Sciences. Þar rannsakaði hann höfuðáverka en einnig samband mígrenis, þunglyndis og heilastærðar.
Lárus S. Guðmundsson flytur prófessorsfyrirlestur við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands fimmtudaginn 28. nóvember.