Opin vörn meistararitgerðar í lögfræði
![Opin vörn meistararitgerðar í lögfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/kolbrun_h_sigurgeirsdottir.jpg?itok=SQvLzpox)
Háskólatorg
HT - 101
Opin vörn meistararitgerðar Guðrúnar Sólveigar Sigríðardóttur í lögfræði.
Titill ritgerðar: Sambúð 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu: Standa rök til breytinga á nálgun íslenskra dómstóla?
Í fyrirlestrinum verður fjallað um vernd eignarréttar samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Fyrst verður fjallað um samanburð á efnislegri vernd ákvæðanna en að því loknu verður litið til nýlegrar þróunar á vettvangi Mannréttindadómstólsins sem felst í aukinni áherslu á gæði málsmeðferðar. Með hliðsjón af þeirri þróun verður því velt upp hvort rök standi til breytinga á nálgun íslenskra dómstóla við úrlausn um stjórnskipulegt gildi eignarskerðinga.
Að loknu erindi Guðrúnar Sólveigar verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.
Leiðbeinandi: Víðir Smári Petersen, dósent.
Prófdómari: Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi hæstaréttardómari.
Guðrún Sólveig Sigríðardóttir, meistaranemi í lögfræði.
![Opin vörn meistararitgerðar í lögfræði](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/g6v9a.jpg?itok=WxIIw_Zr)