Skip to main content

Neytendasamvinnuhreyfingin: Þriðja stoð sænska módelsins 1890-1939

Neytendasamvinnuhreyfingin: Þriðja stoð sænska módelsins 1890-1939 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. maí 2025 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 304

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist: Neytendasamvinnuhreyfingin: Þriðja stoð sænska módelsins 1890-1939.

Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 13. maí kl. 16:00-17:00. Verið öll velkomin. 

Um erindið:

Sagnfræðingar hafa á undanförnum áratugum veitt samvinnufélögum neytenda vaxandi athygli, enda veita þau mikilvæga innsýn í félagssögu – sérstaklega verkalýðssögu og sögu neyslusamfélagsins.  Þau veita ekki síður innsýn í  viðskipta- og fyrirtækjasögu, og þá sérstaklega tilurð tilurð stórfyrirtækja og fjöldamarkaðssetningar. Í erindinu fjalla ég um Samband sænskra samvinnufélaga (Kooperativa förbundet, KF), og sænsku neytendasamvinnuhreyfinguna frá lokum 19 aldar fram til síðari heimsstyrjaldarinnar, og byggi ég þar á  efni doktorsritgerðar minnar.

Á millistríðsárunum óx sænska samvinnuhreyfingin ört og varð ekki aðeins að einni stærstu fyrirtækjasamsteypu Svíþjóðar, heldur einnig ein sú framsæknasta í Evrópu. Vöxtur hreyfingarinnar er samofinn vexti verkalýðshreyfingarinnar, sem samanstóð af þremur meginstoðum: Sósíalistaflokknum, verkalýðsfélögum, og kaupfélögum neytenda. Fræðimenn hafa fjallað ítarlega um starf stéttarfélaga og pólitískt starf, og greint rætur velferðarsamfélags eftirstríðsáranna, en þáttur kaupfélaganna hefur til þessa verið algerlega vanræktur. Saga sænsku samvinnuhreyfingarinnar varpar einnig nýju ljósi á sögu evrópsks neyslusamfélags, sögu stórfyrirtækisins og kapítalismans. 

Magnús Sveinn Helgason er sagnfræðingur. Hann hefur kennt íslenska, evrópska og bandaríska samtímasögu, hagsögu og hagfræði sem stundakennari við Háskólann á Bifröst, Háskólann í Reykjavík, og Háskóla Íslands frá árinu 2010. Magnús hefur auk þess unnið við fjölmiðla, þar á meðal við gerð heimildaþátta um hagsögu fyrir útvarp og sjónvarp. Dotorsritgerð Magnúsar nefnist „The Third Pillar of the People’s Home. Consumer Cooperation, the Rise of Mass-Consumer Society, Social Democracy and the Swedish Model, c. 1890-1939.“ Hún verður lögð fram til varnar við Minnesotaháskóla í Bandaríkjunum haustið 2025.

Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur.

Neytendasamvinnuhreyfingin: Þriðja stoð sænska módelsins 1890-1939