Skip to main content

Minjar í skugga skógar: Áhrif skógræktar á minjar og menningarlandslag

Minjar í skugga skógar: Áhrif skógræktar á minjar og menningarlandslag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. mars 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Oddi

Stofa 202

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Birna Lárusdóttir og Ragnheiður Gró Gylfadóttir flytja erindið „Minjar í skugga skógar: Áhrif skógræktar á minjar og menningarlandslag“ í Fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga.

Haldið í stofu 202 í Odda, miðvikudaginn 19. mars kl. 12:00. Einnig verður hægt að fylgjast með í streymi

Um fyrirlesturinn

Fornleifaskráning sl. áratugi hefur leitt í ljós fjölda minjastaða sem eru í hættu vegna skógræktar. Alls er nú áætlað að hér á landi séu um 40 þúsund hektarar af ræktuðum skógi og fyrirsjáanlegt að skógrækt aukist verulega á komandi árum, ekki síst með aukinni áherslu á kolefnisjöfnun. 

Í yfirstandandi verkefni er lögð áhersla á að varpa ljósi á ástandið og setja fram tillögur að mati á áhrifum skógræktarinnar, bæði á stakar minjar og menningarlandslag. 

Fjallað verður um bakgrunn verkefnisins og stöðu þess í dag og m.a. sagt frá norrænu samstarfsverkefni sem af því er sprottið.