Skip to main content

MENNTASTEFNA OG FARSÆLD

MENNTASTEFNA OG FARSÆLD - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. september 2023 14:00 til 16:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opnunarmálstofa Menntakviku og aðalerindi ráðstefnunnar er helgað því að rýna í tengsl menntastefnu og farsældar. Mikil deigla er í íslensku menntakerfi um þessar mundir þar sem lögð er áhersla á heildstæða samvinnu um farsæld og menntun barna og ungmenna. Nýtt ráðuneyti mennta- og barnamál varð til árið 2021 og farsældarlög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2021. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að leggja niður Menntamálastofnun og vinna stjórnvöld að mótun nýrrar stofnunar sem meðal annars er ætlað að byggja upp heildstæða skólaþjónustu.

Málstofu verður streymt hér 

Dagskrá:

⌚14:00- 14:10 Opnun
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs flytur ávarp.

Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor og deildarforseti kynnir aðalfyrirlesara.

⌚14:10-14:50 Aðalerindi/ Keynote
Gita Steiner-Khamsi, Teachers College, Columbia University, New York.
The use and abuse of research evidence for policy and planning in education.The use of research evidence in the US and in the Nordic region for generating school reform.

⌚14:50- 15:00 Stutt kaffihlé

⌚15:00 –16:00 Málstofa – Menntastefna og farsæld
Ávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra

Ragný Þóra Guðjohnsen
Lektor og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Íslenska æskulýðsrannsóknin: Fullur pottur af rannsóknartækifærum á farsæld barna og ungmenna.

Helgi Arnarson
Sviðsstjóri Menntasviðs Reykjanesbæjar.
Í erindinu er fjallað stuttlega um samspil menntunar og velferðar og komið inn á áherslur í skólakerfinu sem eru líklegar til að stuðla að farsæld allra barna.

Sólveig Sigurðardóttir
Lektor við félagsráðgjafardeild HÍ og deildarstjóri farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað.
Í erindinu verður fjallað stuttlega um heildstæða farsældarþjónustu fyrir öll börn og innleiðingu farsældarlaga á Akranesi.

Susan Elizabeth Gollifer
Lektor við Menntavísindasvið, Deild menntunar og margbreytileika.
Hugleiðingar um menntun, velferð og mannréttindi / Reflections on education, wellbeing and human rights.
---
-Pallborðsumræður-

Ingvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari og sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti stýrir umræðum.

⌚16:00-16:30 Ávarp rektors
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Afhending styrkja til doktorsnema og fræðimanna á sviði menntunar úr Þuríðarsjóði og Steingrímssjóði

⌚16:30 Léttar veitingar í boði að loknum erindum