Matt Ridley á rabbfundi
![Matt Ridley á rabbfundi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__XP23624.jpg?itok=ICmeJLgC)
Hvenær
17. júlí 2024 16:30 til 18:00
Hvar
Háskólatorg
HT-101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Dýrafræðingurinn og Íslandsvinurinn dr. Matt Ridley, fyrrverandi vísindaritstjóri Economist og nú dálkahöfundur í The Times, kemur á rabbfund í Háskóla Íslands. Ridley er heimskunnur metsöluhöfundur og skrifaði m.a. Heimur batnandi fer, sem kom út á íslensku 2014. Hann ræðir m.a.:
- Hvar er sennilegast, að kórónaveiran hafi sprottið upp?
- Hvers vegna vilja kínversk yfirvöld ekki aðstoða við rannsókn málsins?
- Reynir vísindaheimurinn að þagga niður óþægilegar hugmyndir?
- Stafar Vesturveldunum hætta af Kína?
- Ætti íslenska kvótakerfið að vera fordæmi fyrir allan heiminn?
- Var rétt af Bretum að ganga úr Evrópusambandinu?
Matt Ridley, fyrrverandi vísindaritstjóri Economist og nú dálkahöfundur í The Times
![Matt Ridley á rabbfundi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9rkp7.jpg?itok=HRDOFvk0)