Skip to main content

Manntalið 1753 og óvenjulegur aðdragandi þess

Manntalið 1753 og óvenjulegur aðdragandi þess - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. október 2024 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 304

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kristrún Halla Helgadóttir, sagnfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist Manntalið 1753 og óvenjulegur aðdragandi þess.

Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 8. október kl. 16:00-17:00.

Verið öll velkomin.

Um erindið

Hér verður sagt frá því hvernig eitt lítið feilspor innan dönsku konungsfjölskyldunnar leiddi til skráningar manntals á Íslandi árið 1753. Tilgangur manntalsgerðarinnar var svokallaður prinsessuskattur sem var lagður á hér á landi líkt og í Noregi. Skatturinn var íþyngjandi fyrir landsmenn á afar erfiðu harðindaskeiði hér á landi. Það var ekki fyrr en árið 1801 sem samræmd skráning manntala hófst í danska ríkinu. En ólíkt öðrum hlutum konungsveldisins voru nokkur manntöl skráð hér á landi fyrir þann tíma. Þessi 18. aldar manntöl varpa ljósi á sögu Íslands á tímabili þar sem dönsk stjórnvöld voru að herða tökin hér. Samhliða aukinni miðstýringu jókst krafan um nákvæma skráningu og inngrip í daglegt líf þegnanna. Misræmis gætir oft í skráningu þessara manntala. Til þess að átta sig á þessu misræmi og heimildagildi manntalanna þarf að skoða úr hvaða jarðvegi þau spretta. Var tilefnið undirliggjandi nauðung eða íþyngjandi ákvarðanir?

Kristrún Halla Helgadóttir, sagnfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Manntalið 1753 og óvenjulegur aðdragandi þess